Vikan


Vikan - 04.09.1947, Page 1

Vikan - 04.09.1947, Page 1
16 síðnr Nr. 36, 4. september 1947 Guðmundur Jónsson söngvari Hér birtist mynd af einum fremsta söngvara okkar, sem að vísu hefir enn ekki lokið námi og þó þegar öðlast miklar vinsældlr meðal þjóðarinnar. "C'R við heyrðum, að Guðmundur Jóns- son væri í þann veginn að hverfa af landi brott til Stokkhólms, gripum við tækifærið og báðum um mynd af honum og nokkrar upplýsingar. Söngvarinn glæsilegi er hreinræktaður Reykvíkingur og meira að segja bæði aust- ur- og vesturbæingur, því að hann er fædd- ur á Lindargötunni, en hefir frá sex ára aldri átt heima í Vesturbænum og mega því báðir bæjarhlutar eigna sér hann og vel við una! Guðmundur Jónssson er fæddur 10. maí 1920 í Stóragerði við Lindargötu, sonur Jóns kaupmanns Þorvarðarsonar og konu hans, Halldóru Guðmundsdóttur, og er hún fædd og uppalin á Akranesi. Er Guðmund- ur hafði lokið námi í Verzlunarskóla ís- lands vann hann við verzlunarstörf og var einn vetur á enskum verzlunarskóla. Guðmundur hóf söngnám sitt hjá Pétri Jónssyni óperusöngvara og var tvö ár hjá honum. Síðan hélt Guðmundur til Ameríku og stundaði nám hjá rússneskum söng- kennara í Los Angeles, Samoiloff að nafni. Þar var hann í tvö ár, en þó eitt ár heima á milli. Guðmundur kom heim með Karla- kór Reykjavíkur fyrir jól í fyrra; hann söng með kómum vestanhafs. Guðmundur hefir sungið hér víðsvegar um land við hinar ágætustu undirtektir, en nú er hann, einsog fyrr er sagt, á förum til Svíþjóðar — og ætlar þar að læra meira. Hinar beztu óskir fylgja honum í þeirri för. Kvæntur er Guðmundur Þóru Haralds- dóttur og eiga þau eina dóttur, sem er f jögra mánaða gömul. Þeir Stefán Islandi og Guðmundur höfðu sameiginlega hljómleika seint í síð- astliðnum mánuði. Þeir sungu í Tripoli- leikhúsinu og var söngnum útvarpað. Hús- fyllir var á hljómleikunum og var söngv- Tt.mnum báðum forkunnar vel tekið. Má óefað telja þetta einhvern glæsilegasta t”ísöng, sem hér hefir heyrzt. Guðmundur Jónsson söngvari.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.