Vikan - 25.11.1948, Síða 9
VIKAN, nr. 48, 1948
9
Sagan segir, að þegar Leofric Saxajarl, sem uppi var á elleftu
öld, lagði óbærilega þunga skatta á íbúa Coventryborgar á Eng-
landi, hafi Godiva kona hans riðið nakin á hesti um götur borg-
arinnar í mótmælaskyni, og neyddist jarlinn þá til að lækka
skattana. — Frönsku dómararnir þrir á myndinni hér að ofan
eru í svipuðum vanda og jarlinn. Þeir eiga að fella dóm í máli
leikkonunnar (til vinstri), sem ákærð var fyrir að koma fram
á leiksviði „óklædd". Frönsku dómaramir kváðu upp sinn Saló-
monsdóm og úrskurðuðu, að leikkonan skyldi klæðast ,,að minnsta
kosti einhverju" og dæmdu hana auk þess í 3000 franka sekt.
Þetta skeði i gleðibænum Nice i Suður-Frakklandi.
Fréttamyndir
Oba Aderemi, sem hefur nafnbótina Oni
af Ife, er biskup yfir 3.200.000 negrum af
Yorubaskynstofninum í Nigeria. Hann var
nýlega á ferðalagi í Englandi og Skotlandi
ásamt dóttur sinni og var þessi mynd
tekin af þeim fyrir framan gistihús i
London.
Brezki flugherinn er um það bil að taka í notkun nýja tegund
flutningaflugvéla, sem kallast „Hastings". Þær koma í staðinn fyrir
fjögra hreyfla „York“ vélamar, sem mest hafa verið notaðar hingað
til. „Hasting‘‘vélarnar hafa fjóra 1675 hestafla „Hercules“hreyfla og
geta flogið 5000 km. án þess að lenda. Á myndinni sjást nokkrar
þessarra véla.
Seglsnekkjan „Bluebottle“, sem Elísabet Englandsprinsessu og hertog-
anum af Edinborg var gefin í brúðkaupsgjöf, sést hér sigla framhjá
stærsta skipi í heimi, „Queen Elizabeth“, sem er 85000 lestir.
Tvö munaðarlaus grísk börn, fórnarlömb hinnar blóðugu borgara-
styrjaldar. Þau fundust á flækingi í Konitsahéraðinu.