Vikan - 03.03.1949, Síða 1
/
16 síður
Vcrð 1,50
Nr. 9, 3. marz 1949
Skáldkonan og listakonan Hedvig Collin
Eftir RANNVEIGU SCHMIDT
Ef vinkona mín Hedvig Collin vissi, að
ég væri að skrifa grein um hana, þar sem
ég kalla hana skáldkonu, þá myndi hun
hlæja sig máttlausa . . . en svo myndi
hún státa sig að titlinum með mikilli á-
nægju. Og ég held því fram, að hún sé
skáldkona . . . hún hefur mikið hug-
myndaflug og skrifar ágætlega. Það eru
barna- og unglingabækur, sem hún skrif-
ar, en fáir kunna að setja sig inn í hugs-
analíf hinna ungu eins og hún. Hún er
viðurkennd sem einhver hinn bezti teikn-
ari fyrir börn, bæði í Norðurálfunni og í
Ameríku og eins nýtur hún mikjls álits
sem höfundur barnabóka. Ég þarf ekki að
fara lengra en vísa til bókarinnar Wind
Island — Vindeyjan — sem valin var af
„Junior Literary Guild“ í New York sem
bezta bók eins mánaðarins árið 1945. Bók-
in átti miklum vinsælda að fagna í Ame-
ríku og er nú að koma út í París á frönsku
í tíu þúsund eintökum.
Margir hér í Reykjavík hafa hitt
Hedvig Collyi, sérstaklega á sýningunni
hennar sumarið 1946, og enn fleiri þekkja
hana af bók hennar „Hróar og Helgi“, sem
kom út fyrir jól í hittiðfyrra og seldist
mjög; einnig af teikningum hennar í
„Ragnari loðbrók“. Svo eru hér margir
af „eldri árgöngunum“, sem enn eiga
Pramhald á bls. 3.
Efst: Hedvig Collin. — 1 miðju: Frá mynda- og bókasýningu Hedvig Collin í Reykjavík 1946. — Neðst til vinstri: Húsagarður við vinnustofu
Hedvig Collin í Santa Barbara i Kalifomíu. — Neðst t. h.: Vinnustofa Hedvig Collin i Santa Barbara 1944.