Vikan - 03.03.1949, Qupperneq 15
I
VIKAN, nr. 9, 1949
15
UPPREISTIN
Framhald af bls. lk-
Móðir hans mælti: „Þú drepur mig,
er þú kvænist henni, og skilur mig
eina eftir." ,
Johan sagði: ,,Ég veit að þetta
■verður ekki banamein þitt. Og ég
giftist henni þó ég vissi að svo yrði,
sem þú segir. Ekkert skal aftra mér
frá þessum ráðahag."
Ðaginn eftir fór frúin á , fætur og
setti auglýsingu í blaðið. Hún var
svohljóðandi: „Brunbygaard er til
sölu .“ En Johan þekkti ritstjórann
og náði í auglýsinguna. Hún var því
ekki birt. Svo ók Johan til vefnaðar-
vöruverzlunarinnar, og fór inn í búð-
ina.
Hann mælti: ,,Ég tek ungfrú Lor-
ens með í bílferð. Það eru engir við-
skiptavinir hér að þessu sinni. Þar að
auki ætla ég að kvænast ungfrúnni,
og ganga í herinn að því búnu.“
Þetta var daginn, sem Þjóðverjar
réðust á Pólland. Johan vissi, hvað
koma myndi.
„Jæja hvað segirðu um þetta
mál?“ spurði Johan er þau voru kom-
in af stað í bílnum. „Það er stríð,
og ég geng i loftherinn. Áður en ég
fer vil ég vita um það hvort þú vilt
giftast mér.“
„Ó, Jonne,“ sagði Gerd og brast í
grát.
Johan faðmaði hana að sér, og
þerraði tárin. „Litli kjáninn þinn.
Geturðu ekkert annað en grátið? Svo
vil ég ekki láta nefna mig Jonne.“
Hann kyssti hana aftur.
Daginn eftir tók frúin blaðið, er
hún sat yfir borðum, og ætlaði að
lesa auglýsinguna' um sölu herra-
garðsins, sá hún auglýsingu um opin-
berun sonar síns.
Johan mælti: „Brunbygaard verður
ekki seldur. Á meðan stríðið stend-
ur verður jörðin hlutuð niður til smá-
búreksturs margra manna. En að
stríðinu loknu tek ég alla jörðina.
Hér skulu börn min uppalast."
Flugmaður fær heiðursmerki fyrir
sjúkraflug, og hjálp við flóttamenn."
Þetta las Jakob gamli í blaðinu, og
benti á myndina. Hann var eins og
menn.muna, staddur í verzlun ung-
frú Pettersons. „Þessi flugmaður er
Johan Huysman. Hann hefur fært
sönnur á það, að hann er ósvikinn
karlmaður. Móðir hans var það mjög
á móti skapi að hann gerðist flug-
maður. Hún fluttist til Stokkhólms.
En eftir að börnin fæddust kom
hún heim aftur.“ Jakob braut saman
blaðið og gekk í átt til dyra. Á
þröskuldinum staðnæmdist hann,
sneri sér inn í búðina, og mælti:
„Hugsið ykkur! Ekkert af þessu
hefði skeð, ef Johan hefði ekki einn
góðan veðurdag, kinkað kolli til mín
á uppboði í Tommastorp. Já, já,. því-
líkt."
Hæsta verð, sem borgað hefur
verið fyrir veðreiðahest er 214 milj.
kr. Aga Khan fékk þessa upphæð,
þegar hann seldi „Stardust" brezku
verzlunarfélagi.
• Hraðfryst grænmeti
er eins og nýtt.
^nliifpl/KT Fœst í flestum
UUIUIcldg garðyrkjumanna . kjötverzlunum.
Sími 5836. í
Happdrætti Háskóla Islands
Dregið verður í 3. flokki 10. marz
402 vinningar — samtals 133700 kr.
Hæsti vinningnr 15000 krónur.
Endurnýið strax i dag
B I A L I A
Umboðsmenn vorir:
MESSRS. JACKY, MAEDER & CO.,
Piazzale Biancamano N. 8, Milano,
ð
og undirumboðsmenn þeirra í öllum aðal viðskiptaborg-
um taka vörur til gegnumgangandi flutnings frá ítalíu
til Islands, með umhleðslu í Antvverpen og Rotterdam.
Frá Genoa, 5 ferðir á mánuði.
Frá Leghorn, 6—7 ferðir á mánuði.
Vörur cru fluttar með fyrstu ferðum til Antxverpen og
Rotterdam, en þaðan eru örar ferðir til landsins.
Upplýsingar um flutningsgjöld og annað fást á aðal-
skrifstofu vorri.
r
r.f. Eimskipafélag Islands
Hraðfrystihús j
IJtvegum og smíðum öll nauðsynleg tæki S
fyrir hraðfrystihús.
2-þrepa frystivélar
1-þrepa —„— "
■ hraðfrystitæki
flutningsbönd
ísframleiðslutæki
Þvottavélar
Umboðsmenn fyrir hinar landskunnu
ATLAS-vélar.
H.F. HAMAR
REYKJAVÍK
Símnefni: Hamar. Sími: 1695 (4 línur).
,