Vikan - 25.07.1991, Síða 6
ÍRIS RAGNA STEFÁNSDÓTTIR:
X
SAUTJÁN ÁRA
Á EIGIN FÓTUM
o
<=
o
TJ
>
o
co
O
O'
Vinnur á matsölu
til að eiga fyrir
leiguíbúð og námi
auk annars.
íris sér um sig
að öllu leyti
Flesta unglinga dreymir
um að fara að heiman,
leigja sér íbúð og ráða
sér sjálfir. Þegar draumurinn
rætist verða vonbrigðin stund-
um mikil því raunveruleikinn
reynist oft allt annar en þeir
væntu. Skyndilega standa þeir
frammi fyrir því að þurfa að
borga alla reikninga sjálfir;
kaupa sér mat og elda, þvo af
sér, strauja og svo mætti lengi
telja. Margir gefast því einfald-
lega upp og fara aftur heim til
mömmu og pabba sem er eðli-
legt, sérstaklega þegar um er
að ræða ungt fólk sem engan
veginn er tilbúið að axla alla
þá ábyrgð sem því fylgir að sjá
um sig sjálfur. En aðstæður
eru misjafnar. Iris Ragna Stef-
ánsdóttir er ekki ein þeirra
sem lét sig dreyma um að
leigja íbúð né sá f hillingum
ævintýralegt líf í sambandi við
það heldur höguðu kringum-
stæður í lífi hennar því þannig
að hún varð að stofna sitt eigið
heimili fyrir tveim árum, þá 17
ára gömul. íris hefur sýnt fá-
dæma dugnað, hún er (fullu
námi á fjölmiðlabraut í Fjöl-
brautaskóla Breiðholts og
vinnur í veitingahúsinu Kabar-
ett í Austurstræti ásamt því að
leigja sér íbúð og sjá að öllu
leyti um sig sjálf. En hvernig
gekk henni að fá leiguíbúð,
leist fólki nokkuð á að leigja
unglingsstúlku íbúðina sína?
Þegar ég fór að leita að íbúð
var ég svo heppin að vinkona
mín ákvað að leigja með mér.
Fólk tók okkur ágætlega en
samt gekk íbúðarleitin hálf-
brösulega í byrjun. Án efa
voru flestir hræddir um að við
ætluðum að hafa standandi
partí á hverjum degi. Þegar við
loks fengum íbúð vorum við
mjög heppnar því eigendurnir,
sem eru ungt fólk, treystu okk-
ur fullkomlega.
Hvernig gekk ykkur að
standa í skilum með leiguna?
Það gekk vel, við ákváðum
strax í byrjun að láta leiguna
hafa algjöran forgang og ein-
settum okkur að standa í skil-
um eins vel og við gætum.
Voru ekki mikil viðbrigði að
þurfa að sjá alveg um sig
sjálf?
Jú, auðvitað. Þetta er ekkert
auðvelt en ég hafði gert mér
grein fyrir því og búið mig und-
ir það. Ég hef aldrei, eins og
C
O'
6 VIKAN 15. TBL 1991