Vikan - 25.07.1991, Blaðsíða 10
TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN / LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
OG HAMINGJAN
Hann var tískusýningamaður í rúm tuttugu ár og hafði laun hér-
lendis og erlendis fyrir það hvernig hann leit út. Sjálfur lýsir hann þó
útliti sínu þannig að hann sé það stuttfættur að hann sé í stórhættu
með að fá flís í óæðri endann fari hann yfir háan þröskuld. „Svo er
ég með flatan hnakka og innstæð augu svo það er alveg furðulegt
að heilabú skuli komast fyrir þarna á milli. Pabbi hafði stórar tennur
og mamma lítinn góm svo ég er með tennur út um allan munn. Útlit
mitt sannar að maður lítur eins út og maður ákveður sjálfur."
FYRRI LÍF
Heiðar Jónsson snyrtir hefur um árabil kennt
konum á öllum aldri fatastíls- og förðunar-
tækni. Hann er fulltrúi Ijónsmerkisins í Vikunni
en brugðið var út af vananum með úrvinnslu
stjörnukortsins því Heiðar varð þess heiðurs
aðnjótandi að fá fyrsta fyrri lífa kort Stjörnu-
spekistöðvarinnar í Aðalstræti. Fyrri lífa kortin
eru þróuð af Gunnlaugi Guðmundssyni í tilefni
af tíu ára afmæli fyrirtækisins og meðal efnis-
atriða þeirra má nefna kafla um hæfileika
vegna fyrri lífa, veikleika vegna fyrri lífa, ást,
kynlíf og samskipti, auk almennra leiðbein-
inga. En talandi um fyrri líf, hvar sleit Heiðar
barnsskónum?
„Ég er alinn upp hjá séra Þorgrími Sigurðs-
syni, presti og prófasti á Staðastað á Snæfells-
nesi. Þangað var ég gefinn eins árs og eignað-
ist þar fjórar fóstursystur. Svo á ég níu hálf-
systkin, mamma átti tvö og pabbi á sjö. Meðal
annars á ég tvær hálfsystur sem eiga sama af-
mælisdag og ég svo það var regla á hlutunum
á þeim bæ.“
AÐALSMAÐUR VIÐ HIRÐ
SÓLKONUNGSINS?
Heiðar hefur sól í Ljóni, tungl í Vog, er rísandi
Sporðdreki, hugsun í Ljóni, samskipti í Krabba
og framkvæmdaorku í Vog.
Aðstæður Heiðars í fyrra lífi voru þær aö
hann upplifði bæði að vera aðalsmaður og
þjónn. Hann kynntist óhófi og misnotkun valds
og ber þá upplifun með sér yfir [ þetta líf. Einn-
ig á Heiðar að hafa verið diplómat og listamað-
ur í fyrri lífum, allt eiginleikar sem njóta sín vel
í starfi hans í dag.
Meðal hæfileika vegna fyrri lífa er tekið fram
að Heiðar eigi auðvelt með að skilja konur og
fínni þætti tilverunnar. (Þeim lesendum sem
hugsa að kortið hafi verið sérhannað fyrir
Heiðar skal bent á að blaðamaður tók, í sam-
ráði við Gunnlaug í Stjörnuspekistöðinni,
skyndiákvörðun um að Heiðar fengi lesið úr
fyrri lífa korti og að þaö var afhent án nokkurs
fyrirvara.) Þessir hæfileikar bera einnig með
sér að konur munu oft reynast Heiðari vel og
hjálpa honum. Bent er á að Heiðar hafi unnið
mikið með tilfinningar og að jákvæð tilfinninga-
viðhorf, sem hann kemur með úr fyrri lífum, viti
á heppni.
Heiðar þarf þó að gæta sín á því að hann á
auðvelt með að semja frið við sjálfan sig og
hefur tilhneigingu til að vilja renna áreynslulítið
í gegnum lífið.
ÖFGAR í SJÁLFSTJÁNINGU
Satúrnus (hömlur) í Ljóni bendir til þess að
Heiðar sé hræddur viö ástina og þori ekki að
koma skapandi hæfileikum á framfæri. Honum
hættir því til stífni og bælingar í sjálfstjáningu
og þess að vera óöruggur með sig. Hins vegar
gætu öfgarnar leiðst í þveröfuga átt og hann
lagt á það áherslu að móta glæsilega sjálfs-
tjáningu.
„Þarna er búið að segja frá þessu. Ég hafði
mig þó út úr þessari bælingu sem unglingur.
Vissulega er ég að sumu leyti leikari á leik-
sviði, eins og við erum öll, ég leik kannski bara
pínulítið betur. (Gaman að svona hógværu
fólki.) í mér búa miklar öfgar og ég er gjarn á
mikla þráhyggju."
Frelsi Heiðars felst í því að hafna niðurríf-
andi sjálfsgagnrýni og slaka á þeim miklu kröf-
um sem hann gerir til sín. Hann þarf að læra
að gera hvorki of mikið né of lítið úr sjálfum
sér.
Vegna þess að Heiðar hefur ferðast mikið í
fyrri lífum og komið víða við er hann víðsýnn
og fordómalítill. Hann flýtir sér ekki að dæma
aðra og hafnar ekki því ókunna. Vegna reynslu
hans eru ferðalög hans yfirleitt ánægjuleg og
eins ættu honum oft að bjóðast ferðalög án
þess að þau kosti hann mikið.
í fyrri lífum vann Heiðar við kennslu og rit-
störf og þroskaði með sér sjálfstæða og
ákveðna hugsun. í fyrri lífum hefur hann einnig
verið fræðimaður og heimspekingur og tungu-
mál hafa legið vel fyrir honum. Þetta bendir til
þess að hann sé víðsýnn og umburðarlyndur
og fljótur að grípa nýjar hugmyndir. Einnig ætti
hann að vera góður fyrirlesari (jú, þetta stend-
ur í kortinu).
Heiðar situr orðlaus en rekur upp hláturrokur
öðru hvoru og segir að loknum lestrinum að
10 VIKAN 15.TBL.1991