Vikan - 25.07.1991, Page 8
Frh. af bls. 6
svo margir jafnaldrar mínir,
séð það í hillingum að leigja
íbúð og ráða mér sjálf. Þetta
er fyrst og fremst mikil vinna. í
byrjun fannst mér erfitt að
þurfa að þvo, strauja og elda
mat en það vandist fljótt.
Kunnir þú að elda mat þegar
þú byrjaðir að búa?
Já, ég kunni að elda allan
algengan mat. Annars borða
ég yfirleitt heitan mat í vinn-
unni og skólanum og hef þá
létt fæði heima.
Hefurðu unnið með skólan-
um frá byrjun?
Já, ég hef unnið á sama
stað í nokkur ár. Ég er heppin
með atvinnuveitendur því þeir
koma mjög vel til móts við
þarfir mínar með því að láta
mig hafa fullt starf í öllum jóla-
og páskafríum og á sumrin. Á
veturna vinn ég aðra hvora
helgi og tvær kvöldvaktir í
viku.
Nú ertu í fullu námi líka.
Hvernig gengur þér að sam-
ræma námið og vinnuna?
Það gengur bara vel. Þetta
er fyrst og fremst spurning um
að skipuleggja tímann vel.
Mér gengur ágætlega í
skólanum og næ yfirleitt að
skila verkefnum á réttum tíma
þó ég þurfi að vinna með
skólanum. Það hefur þó stöku
sinnum komið fyrir að ég hef
orðið sein fyrir með ritgerðir og
annað slíkt en sumir kennar-
arnir þekkja aðstæður mínar
og eru mjög skilningsríkir.
Hvers vegna valdir þú fjöl-
miðlafræði?
Mér finnst nútímafjölmiðlun
vera mjög spennandi og bjóða
upp á ótal möguleika. Þegar
maður hugar til þess hve fjöl-
miðlarnir eru áhrifamiklir og
hafa mótandi áhrif á einstakl-
inginn þá liggur við að það
þyrmi yfir mann. Mér finnst þvf
skipta óhemju miklu máli að
vel sé staðið að öllu sem við-
kemur fjölmiðlun og það sé
vandað til þess sem hefur slík
áhrif. Ég tel að þeir sem starfa
við fjölmiðla verði að gera sér
grein fyrir þessu og að undir-
búningurinn undir störf þeirra
sé eins góður og mögulegt er.
Þess vegna er svo mikils virði
aö þeir sem hyggja á fjölmiðla-
nám f háskóla geti kynnst
náminu strax í fjölbraut. Þann-
ig settu þeir að vera betur búnir
undir væntanlegt háskólanám.
Hvaða grein innan fjölmiðl-
unar höfðar mest til þín?
Mér finnst þetta allt mjög
spennandi en ætli það sé ekki
blaðamennska og Ijósmyndun
sem höfða mest til mín eins og
er.
8 VIKAN 15. TBL.1991
Hyggur þú á áframhaldandi
nám eftir stúdentspróf?
Já, alveg örugglega. Ég hef
mikinn áhuga á að komast í
blaðamannaháskóla f Bret-
landi eða Noregi. Annars verð-
ur tíminn bara að leiða í Ijós
hvað verður.
Nú vinnur þú mikið og ert í
skóla. Hefurðu nokkurn tíma til
að skemmta þér með vinum
þínum?
Ég vildi auðvitað hafa meiri
tíma með vinum mínum en
það er bara ekki um það að
ræða. Annars hittumst við eins
oft og við getum og förum þá á
pöbbarölt eða á tónleika.
Flestir vinir mínir eru í svipaðri
aöstöðu og ég, þeir vinna líka
með skólanum svo við skipu-
leggjum tíma okkar út frá því.
Er ekki ýmislegt sem þú get-
ur ekki tekið þátt í meö skóla-
félögum þínum vegna tíma-
skorts?
Jú, því miður get ég ekki
tekið þátt í félagslífinu í
skólanum nema að litlu leyti.
Það hefur mér þótt einna erfið-
ast að sætta mig við.
Færðu ekki nein námslán
eða styrki frá hinu opinbera?
Nei, það er ekki neitt slíkt í
boði. Ég taldi mig eiga rétt á
dreifbýlisstyrk þar sem ég
á lögheimili á Akureyri en
menntaskólinn þar býður ekki
upp á fjölmiölabraut en svo
reyndist ekki vera.
Hvernig stendur á því?
Fyrst fékk ég synjun f
menntamálaráðuneytinu á
þeirri forsendu að ég ætti lög-
heimili í Reykjavík þar sem ég
er búsett þar. Þegar ég sýndi
fram á að lögheimili mitt er á
Akureyri voru viðbrögð ráðu-
neytisins á þá vegu að ég
myndi útskrifast meö sömu
réttindi af félagsfræðibraut í
Menntaskólanum á Akureyri.
Og þar strandar málið, orð
þeirra f ráðuneytinu virðast
vera lög sem ekki er hægt að
hnekkja.
Hefur aldrei hvarflað að þér
að gefast upp, íris?
Nei, aldrei nokkurn tíma. Ég
er ánægð með lífið og finnst
ekkert að því að þurfa að hafa
eilítið fyrir hlutunum. Ég er líka
fullviss um að það er hollara
en að fá allt rétt upp í hendurn-
ar. Mér dytti aldrei í hug aö
leggjast í draumóra eða öf-
undsýki, maður á bara að taka
lífinu eins og það er og gera
sitt besta og alls ekki að vera
að gera sér rellu út af ein-
hverju sem skiptir engu máli.
Ég er mjög jarðbundin og held
að ég sjái lífið eins og það er
og er alveg sátt við að þurfa að
hafa eitthvað fyrir því. □
■ Næ yfirleitt að skila verkefn-
um á réttum tíma þó ég þurfi
að vinna með skólanum.
■ Finnst nútímafjölmiðiun
vera mjög spennandi og
bjóða upp á ótal mögu-
leika.
■ Ég vildi auðvitað hafa
meiri tíma með vinum
mínum en það er bara
ekki um það að ræða.
■ Fær ekki nein náms-
lán eða styrki frá
hinu opinbera.
■ Ánægð með lífið
og finnst ekkert
að því að þurfa
að hafa eilítið
fyrir
hlutunum.