Vikan - 25.07.1991, Blaðsíða 22
TEXTI: PORSTEINN EGGERTSSON
MATREIÐSLUMEIS
MEÐ PÁLMANN
EFTIR GLÆSILEGA FRAMMISTÖÐU A
Þeir eiga líklega glæsta
framtíð, matreiðslu-
meistararnir sem tóku
þátt í alþjóðlegu matreiðslu-
keppninni í Chicago í sumar.
Þótt þeir hafi keppt fyrir ís-
lands hönd, fóru þeir utan á
eigin vegum með stuðningi
nokkurra velunnara. Þeir voru
nýjustu þátttakendur keppn-
innar og meðalaldur þeirra var
lægstur en það kom ekki í veg
fyrir að þeir ynnu til brons-
og silfurverðlauna. Það sem á
vantaði til að gullið ynnist
hlýtur að skrifast á reikning
reynsluleysis enda lærðu þeir
heilmikið á þessu og eru stað-
ráðnir f að taka þátt í næstu
keppni af þessu tagi að fjórum
árum liðnum.
MATSEÐILL
fSLENSKA LIÐSINS
Vatnakrabbasúpa með geddurúllum
★
Salat með gröfnu lambi og
balsamískri vínediksósu
★
Önd að hætti Reykjavíkur
borin fram með sveppaúrvali
og rósmarínilmandi sósu
★
Eftirréttur „Apple Bavarian"
með ananassósu og bláberjum
Islensku
matreiðslu-
meistar-
arnir.
Frá vinstri:
Úlfar Finn-
björnsson,
Baldur
Öxdal Hall-
dórsson,
Bjarki Hilm-
arsson,
Ásgeir
Erlingsson,
Sigurður
Hall og Örn
Garðars-
son. Þá
koma
sigursælir
keppendur
frá öðrum
löndum.
T
MIKIL UMFJÖLLUN
ERLENDIS
Önnur þjóð hefur ekki tekið
þátt í þessari keppni áður en
var með í fyrsta skiptið núna;
Frakkar, ein af frægustu mat-
reiðsluþjóðum heimsins. Alls
tók á þriðja tug þjóða þátt í
keppninni og voru íslendingar
í riðli með Hollendingum, Kín-
verjum og Svisslendingum.
Skilyrði fyrir þátttöku er að
keppendur séu meðlimir í Al-
þjóðasamtökum matreiðslu-
manna en íslandsdeild þeirra
er Klúbbur matreiðslumeist-
ara. Til að komast í þann
klúbb þarf a.m.k. níu ára
starfsreynslu og þar af tvö ár
sem yfir- eða aðstoðarmat-
reiðslumeistari á sama
staðnum. Þeir sem tóku þátt í