Vikan - 14.12.1950, Qupperneq 21
Jólablað Vikunnar 1950
21
HEIMILISSIOAN
\
JÓLASÆLGÆTI
Marsipan:
500 gr. saetar möndlur; 5-—10 st.
beiskar möndlur; 1—2 msk. vatn;
5—700 gT. flórsykur.
Möndlurnar afhýddar og settar síð-
an í kalt vatn og látnar standa í því
yfir nótt. Næsta morgun eru þær
þerraðar vel og malaðar 4—5 sinn-
um með helmingnum af sykrinum í
gegnum möndluvél. Vatninu bætt í
smátt og smátt á meðan möndlum-
ar eru malaðar. Að því loknu er mass-
inn settur í pott og ylaður unz vatn-
ið er gufað upp og massinn orðinn
samanhangandi og tollir ekki við
fingurna, þó að maður þrýsti þeim í
hann. t>á er hann kældur vel í lokuðu
íláti. — í>egar massinn er orðinn vel
kaldur er flórsykri hnoðað upp í. Tlr
marsipaninu má móta ýmislegt: dýr,
ávexti og fleira, og lita það með
ávaxtalit og því um líku.
Brenndar möndlur:
1 dl. möndlur; 1 dl. sykur; 1 dl.
vatn.
Möndlur, sykur og vatn er allt lát-
ið á pönnu og soðið unz vatnið er
gufað upp og er hrært stöðugt í á
meðan. Þegar vatnið er gufað upp, er
sykurinn brúnaður og situr allur
fastur utan á möndlunum, og má
nota þær þannig, eins má láta þær
vera lengur á pönnunni og hræra
vel í unz sykurinn byrjar aftur að
bráðna. í>á verða þær glansandi.
Látnar kólna vel. Geymdar í lokuðu
íláti.
Súkkulaði konfekt:
10 msk. vatn; 250 gr. sykur; 500
gr. suðusúkkulaði; 250 gr. hnet-
ur eða möndlur.
Sykur og vatn er látið í pott og
soðið unz sykurinn er uppleystur.
Súkkulaðinu bætt út í og síðast
gróft söxuðum möndlunum. Maukið
sett í smá toppa á smurða plötu og
þurrkað við yl inni í ofni (bezt er að
hafa ofninn opinn á meðan). Geymist
í lokuðu íláti og pappír látinn vera
á milli laga.
Ódýrt marsipan:
100 gr. smjörlíki; 1 dl. vatn; 125
gr. hveiti; 375 gr. sykur; 150 gr.
flórsykur; möndludropar eftir
bragði.
Vatnið hitað. Smjörið brætt og
hellt saman við. Hveitinu þeytt sam-
an við. Hrært stöðugt i unz það tollir
ekki lengur við pottinn. Möndludrop-
unum bætt í og massinn kældur. Þá
er flórsylcri hnoðað upp í.
Búið til kjólaskraut Or
ullargarni
Úr afgöngum af ullargarni er hægt
að búa til litlu fallegu blómin, sem
eru sýnd hérna á myndinni, en það
er mjög fallegt að nota þau til
skrauts á prjónuð telpuföt; ef til vill
tekst það ekki svo vel með fyrstu
tvö—þrjú blómin, en smátt og smátt
æfist maður, og ullargarnsblómin eru
sett til skrauts á kjól, peysu eða
húfu.
Snotur,
heklaður smádúkur.
Stœrð: ca.20 cm. i þvermál.
Efni: Kringlóttur léreftsbútur sem
er 7 cm i þvermál, heklugarn nr. 60;
heklunál nr. 13.
Skammstafanir: 1. (lykkja); kl.
(keðjulykkja); fl. (fastalykkja); drl.
(draglykkja); st. (stuðull); tv.st.
(tvíbrugðinn stuðull).
1. umferð: Brjótið mjóan fald á
léreftsbútinn og heklið síðan fasta-
lykkjur hringinn í kring, þannig að
lykkjurnar liggi þétt. Lokið fyrstu
umferð með einni drl. í fyrstu fl.
3. umferð: Fitjið upp fjórar kl. og
heklið síðan 3 tvst. (Fjórar fyrstu
lykkjurnar í hverri umferð koma í
stað eins tvíbrugðins stuðuls). Hekl-
ið síðan 4 kl. og 4 tv.st. til skiptis
allan hringinn, og eiga þá 27 stuðla-
hópar (með fjórum stuðlum í) að
vera i hringnum. Endið umferðina
með að hekla 4 kl. og lokið síðan um-
ferðinni með einni drl. i fyrsta tv.st.
3. umferð: Fitjið upp 4 kl. og hekl-
ið síðan 3 tv.st. í stuðlahópinn, sem
er fyrir neðan með því að taka í
hálfa lykkjuna. Þvi næst heklið þér
1. mynd. Leggið
þráðinn yfir visi-
fingurinn og vefj-
ið niður eftir fingr-
inum.
2. mynd. Þræðið
nú með stoppunál
annan endann upp
fg niður eftir vafn-
ingnum.
3. mynd. Festið
þráðinn í hvert
skipti i lykkjuna,
sem liggur yfir
fingurgóminn.
4. mynd. Loks
festið þér þráðinn
vel, þegar búið er
að búa til klukk-
una. Skreytið
klukkuna með gul-
um þræði og drag-
ið grænan spotta i
gegnum hvert
blóm, þannig að
hann myndi legg.
Hálfsíður kvöldkjóll úr atlasksilki,
með rósóttu „tulle“ og stórum ,,tulle“-
kraga. Kjóllinn er frá Iris. (Pétur
Thomsen tók myndina).
6 kl. og 4 tv.st. til skiptis og látið
stuðlahópana i 2. og 3. umferð stand-
ast á (það verða 27 stuðlahópar og
6 kl. á milli). Endið umferðina með
6 kl. og tengið með einni drl. í fyrstu
tv.st.
1). umferð: Fitjið upp 4 kl. og heklið
þrjá tv.st. Heklið síðan 7 tv.st. i bil-
ið. Haldið svona áfram allan hring-
inn. Endið umferðina með 1 drl. í
fyrstu tv.st. „ , . ,,
Framh. a bls. 2lf.
Leikfang sem barnið getur
búið sér til sjálft.
Flest börn hafa gaman af að reyna
að föndra við hitt og þetta. Úr mis-
munandi stórum korktöppur er hægt
að búa til ýms dýr og fleira þvi um
líkt. — Gíraffinn hér á myndinni er
gerður úr tveim korktöppum, fjór-
um eldspýtum og tveim pipuhreins-
urum. — Fáið yður korktappa og
festið á hann fjórar eldspýtur og tvo
pipuhreinsara. Festið korktappa á
annan pipuhreinsarann, en hringið
hinn upp eins og sést á myndinni.
Límið pappírseyru á tappann, sem
þér hafið fyrir höfuð á giraffanum,
og teiknið með bleki augu og munn
á hann. — Reynið nú á hugmynda-
flugið, hvort þér getið ekki látið yð-
ur detta eitthvað fleira skemmtilegt í
hug, sem er hægt að búa til úr kork-
töppum og pípuhreinsurum fyrir
jólin!