Vikan


Vikan - 14.12.1950, Blaðsíða 38

Vikan - 14.12.1950, Blaðsíða 38
38 Jólablað Vikunnar 1950 Gissur og Rassmína taka sér hvíld Rasmína: Gissur! Komdu strax heim! Hún frú Þvaðran var að bjóða okkur að Koma og búa hjá sér á sveitasetrinu hennar um hálfsmánaðar tíma. Hún sagði að við hefðum gotc af því að fá að njóta góðrar hvíldar í hreinu iofti, og það er einmitt það, sem við þörfnumst! Gissur: Þetta var skemmíileg hugmynd! Hvenær förum við, Rasmína? Rasmína: Eftir tvær klukkustundir . . . Farðu nú að ganga frá fötunum þínum! Og þegar við komum aftur verðum við hress og endnrnærð eftir langa og góða hvíld! Þjónninn: Hvað hafið þið hugsað ykkur að vera lengi í burtu? Rasmína: Hálfan mánuð eða svo. — Á þetta biað hef ég skrifað ýmislegt, sem okkur iangar til að fá gert, á meðan við erum í burtu! Frú Þvaðran: En hvað mér þykir vænt um að sjá ykkur! Ekki vilduð þið víst bera inn töskurnar ykkar sjálf? Þjónninn minn og þjónustustúlkan sögðu upp vistinni í morgun! Gissur: Þokkalega byrjar það! Rasmína: Ég skal reyna, frú Þvaði-an, en ég hef ekki búið til mat árum saman! Frú Þvaðran: Víst geturðu búið til mat, elskan. Mér var sagt að þú værir myndarleg. Og Gissur, þegar þér hafið lokið við að gera hreint herberg- ið yðar, þá langar mig til að biðja yður um að fara I nokkrar sendiferðir! Frú Þvaðran: En hve þið eruð indæl. Mér þykir svo gaman að hafa snyrtilegt hjá mér. Þegar þið eruð búin að þessu, vilduð þið þá ekki hreinsa fyrir mig gluggana? Gissur: Ég sé ekki fram úr því, sem ég á að gera! Hvert á ég að láta píanóið? Frú Þvaðran: Það hefur verið svo yndislegt að hafa ykkur hér. Mér fannst það eins og skemmti- legur mömmuleikur! Ég vona að þið hafið einnig haft gaman að því og séuð nú vel út hvíld! Gissur: Ég er feginn að einhver hafði ánægju af þvi . . . Gissur: Ég vona, að ég þurfi aldrei að lenda i nokkru þessu líku aftur. Mér finnst bakið á mér vera brotið eftir erfiðið . . . Þokkaleg hvíld eða hitt þó heldur! Rasmína: Guð hjálpi mér! Þjónustufólkið er far- ið! Hérna er bréf, sem þau hafa skilið eftir til okkar! Gissur: Ég veit ekki hvort ég get afborið þetta eftir alla lwíldina! Rasmína: Ég gefst upp! Ég er orðin spitalamat- ur af þreytu!

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.