Vikan


Vikan - 14.12.1950, Blaðsíða 37

Vikan - 14.12.1950, Blaðsíða 37
Jólablað Vikunnar 1950 37 Ógleymanleg f jölskylda. Framhald af bls. 8. þessi blómabeð einhver mesta unun frænku minnar. Þau máluðu bílinn sinn gljáandi hvítan og máluðu íbúðarhúsið, hlöð- una og hjáleiguna allt eins litt — hvitt með rauðu þaki. — Frændi minn, sem sá eftir að eyða öllum þessum peningum í nýja málningu, sagði við konu sína. ,,Ef til vill hef- ur okkur ekki langað tii að eiga fal- legasta búgarðinn í sveitinni, en þetta Gomez fólk hefur kennt okkur að meta það að hafa fallegt umhverfi og fallega máluð hús,' og nú er ég hreykinn af bænum minum.“ Áður en þau fóru annað sumarið sýndu Gomez fólkið okkur, hve inni- lega þeim þótti vænt um okkur. Stig- inn upp á hlöðuloftið hafði verið í lamasessi vikum saman, og frændi minn hafði alltaf gleymt að gera við hann. Dag nokkurn sendi hann Pét- ur upp á loftið; stiginn brotnaði og Pétur var fluttur á sjúkrahús með vinstri fótinn brotinn á tveim stöð- um. Daginn eftir kom ungur lögfræð- ingur heim að búgarðinum. Hann hafði heyrt um slysið og ætlaði nú að fá leyfi til að lögsækja frænda minn fyrir hönd Péturs. Hann íór inn til Gomez fjölskyldunnar, og þar sem hann kom ekki út aftur, varð frændi minn stöðugt hræddari. Loks fannst honum hann ekki geta beðið lengur og fór inn í hjáleiguna til Gomez fólksins, og sá þá lögfræð- inginn, þar sem hann sat að snæð- ingi með Gomez fólkinu. ,,.Tæja, ætlið þið þá að krefja mig skaðabóta?" spurði frændi minn óttasleginn. Gomez hjónin horfðu undrandi á hann. „Krefja þig skaða- bóta — vin okkar?“ sagði Gomez brosandi. ,,Þessi ungi maður kom hingað og bað um að fá að lögsækja þig fyrir okkur. Við álitum samstund- is að hann væri svangur, fyrst hann lét svona, svo að við buðum honum að borða.“ Þannig var Gomez fólkið. Það krafði ekki vini sína um peninga og tómur magi var undirrót alls ills. Um leið og Pétur var orðinn ferða- fær fór Gomez fólkið til San Francis- co, og sögðust mundu koma næsta sumar. En næsta sumar varð frændi minn að skrifa þeim og biðja þau um að koma ekki, vegna þess að það hafði komið mikil vorfrost, sem höfðu eyðilagt uppskeruna, svo að hann þyrfti ekki á kaupafólki að halda og auk þess hafði hann ekki ráð á að fá sér aðstoðarfólk. Hann fékk síðar bréf frá Gomez fólkinu, þar sem þau sögðust heldur ekki geta komið, vegna þess að Pétur lægi veikur á spítala, og þau gætu ekki hugsað sér að fara án hans. Þið getið tæplega imyndað ykk- ur undrun okkar, þegar Gomez fólkið kom samt sem áður í gamla bíl- skrjóðnum sínum. Þau sögðust hafa rætt við Pétur, og hann hefði beöið þau að fara upp í sveit um sumarið, þó að hann kæmist ekki með. Þau sögðust vissulega ekki ætlast til þess, að þau fengju atvinnu hjá frænda mínum, — en þau langaði til að fá að búa í hjáleigunni um sumarið, á meðan þau ynnu á öðrum búgarði neðar i dalnum. Við vorum undrandi. Það var ekki líkt þeim að skilja Pétur einan eftir á sjúkrahúsi i borginni. En bráðlega komumst við að raun um, að þau komu, vegna þess að þau álitu, að uppskerubresturinn hefði algerlega eyðilagt fjárhag okkar. Þau komu til að hjálpa okkur, til að vera viss um, að við syltum ekki til dauða. Alltaf, þegar þau elduðu „spaghetti“ kom eitthvert Gomez-barnanna með fullan pott af því. „Mamma eldaði of mikið," sögðu þau til að særa ekki sjálfsvirðingu okkar; og iðulega færðu þau okkur-kökur og heimabök- uð brauð. Við reyndum að sýna þeim fram á, að það væri ekkert að óttast, að við yrðum hungurmorða. En Gomez fólkið vissi betur. Uppsker- an var ónýt — var það ekki rétt? Allan daginn unnu þau á búgarðin- um neðar i dalnum, en á kvöldin, að afloknu dagsverki, hjálpuðu þau frænda mínum við hvaða starf, sem hann var að vinna. Hann varð hálf feiminn við þetta, þar sem hann gat ekki borgað þeim, en þá sögðu þau: „Við verðum að hjálpa þér að koma búskapnum aftur í samt lag, svo að við getum komið aftur næsta ár. — Pétur bað okkur um það.“ Á ýmsan hátt hjálpaði Gomez fólkið okkur þennan mánuð, sem þau voru hjá okkur. Og eftir að þau voru farin til San Francisco og Pét- urs, sá frændi minn, að þau höfðu gefið okkur síðustu gjöfina í þetta si.m. Á borðinu í hjáleigunni voru hundrað krónur í smápeningum, — peningum, sem þau vanhagaði sjálf um, og þau höfðu unnið inn með súr- um sveita þá um sumarið. Hjá pen- ingunum var óhreint, illa skrifað bréf, sem á stóð: „Til þess að hjálpa ykkur að fá útsæði. Komum aftur næsta ár. Ykkar einlægir vinir, Gomez fjölskyldan." Löngu síðar frétti frændi minn, hversvegna Pétur hafði legið í sjúkrahúsi. Fóturinn sem hann hafði brotið í hiöðunni, hafði gróið skakkt saman, og varð þvi að brjóta hann upp aftur. Hvorki Pétur né fjöl- skylda hans ásökuðu frænda minn, þó að það væri kæruleysi hans að kenna, að slysið varð. Ég sá aldrei Gomez fólkið eftir þetta. Ég flutti austur á bóginn og eyddi ekki lengur sumarfríi mínu á búgarðinum. En frændi minn skrif- aði mér og sagði mér iðulega frá þeim, fullur þakklátssemi í þeirra garð. Þau komu til hans á hverju sumri, þangað til hann dó, og færðu honum þessa óvenjulegu gjöf —- mikla og höfðinglega hjartagæzku. Fyrir sex hundruð árum héldu menn að stjörnurnar væru ljós, sem skini í gegnum gólfið á himninum. ! ! ! 1 Fairmont Park í Salt Lake City var stolið um fimmtíu fermetr- um af túni á einni nóttu. ; | t Með berum augum getur maður séð um 2000 stjörnur á himninum á stjörnubjartri nótt. En í beztu stjörnukíkum getur maður séð um 300.000.000.000 himinhnetti. Sitt merkið frá hvorri! Sá hlær bezt, sem síðast hlær! Sekir eða saklausir! „1 þetta skipti er það áreiðanlega ást —• hann er svo ríkur!“ Mynd efst til vinstri: Brúðirnar í Kína bera þungar slæður fyrir andlit- inu, til þess að verja sig gegn illum öndum, sem gætu komið í veg fyrir giftingu þeirra. — Mynd neðst til vinstri: Hvað mikið salt er i sjónum? — Nægilega mikið til þess að hylja gervalla jörðina með 112 feta þykku saltlagi. — Mynd neðst í miðju: Líkkisturnar á eynni Bali við Indland, eru hafðar eins og hestar að lögun. — Mynd til hægri : Steingeitin hefur klauf- ir, og hún beitir aðeins fremsta hluta þeirra, þegar hún gengur.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.