Vikan - 25.06.1992, Page 51
milli tveggja áðurnefndra
myndavélargerða og minna
þær helst á vídeómyndavélar í
útliti.
Það fyrsta sem þarf að hafa
í huga við val á myndavél eru
þarfir viðkomandi Ijósmyndara
og hvað myndavélin á að
kosta. Hvort er meira atriði að
myndavélin sé fyrirferðarlítil
eins og vélar með fastri linsu
eru eða hafi þann sveigjan-
leika sem vélar með skiptan-
legum linsum bjóða upp á? Ef
hugmyndin er að taka skyndi-
myndir af fjölskyldu og vinum
eða litmyndir í ferðalögum,
sem eru prentaðar á smáan
pappír, er ódýr myndavél með
fastri linsu líklega fullnægj-
andi. Ef Ijósmyndarinn hefur
hins vegar áhuga á að nýta
sér þá ólíku sköpunarmögu-
leika sem eru aðeins fram-
kvæmanlegir með myndavél-
um með skiptanlegum linsum
og öðrum fylgihlutum er það
vænlegri kostur þótt þær séu
yfirleitt dýrari.
Þá stendur valið um hversu
mikla sjálfvirkni myndavélin á
að hafa. Sjálfvirkni styttir um-
hugsunartímann um ýmis
tæknileg atriði og það getur
haft úrslitaþýðingu til að ná að
smella af á ákveðnu augna-
bliki og fá „rétt“ lýsta mynd.
Hins vegar getur verið álíka
þreytandi að þurfa að lúta
valdi myndavélar sem gerir allt
sjálf og býður ekki upp á neina
stillingarmöguleika. Ef mynda-
vél með skiptanlegum linsum
verður fyrir valinu er mikilsverf
að kynna sér hvaða linsur og
fylgihlutir eru fáanlegir hjá við-
komandi framleiðanda.
Eins og áður sagði hefur
þróunin undanfarin ár verið
mest i smámyndavélum með
föstum linsum. Það má segja
að við séum að ákveðnu leyti
komin í hring því að stóru
filmufyrirtækin eru farin að
bjóða upp á úrval einnota
myndavéla sem eru sumar
hverjar bráðskemmtilegar og
hafa jafnvel eiginleika sem
aðrar hefðbundnar vélar hafa
ekki. Þessar vélar eru að sjálf-
sögðu ekki með merkilegum
linsum og því verða myndirnar
aldrei mjög skarpar en 35 mm
filmustærð hjálpar þó til þann-
ig að þær eru ekki síðri en disk-
myndavélar eða gömlu in-
stamatic" vélarnar. Kjörorðið
góða, „Þú smellir af og við
sjáum um afganginn", er hér í
fullu gildi nema maður fær ekki
myndavélina til baka úr fram-
köllun. Fræðilega séð er þó
hægt að nota vélarnar aftur ef
fólk hefur áhuga á að leika sér
með þann möguleika. Þessar
vélar eru til með flassi og einn-
ig eru á markaðnum einnota
myndavélar til myndatöku
undir vatnsyfirborði og vélar
sem taka víðsýnis- eða panor-
amic-myndir.
Stærri myndavélafram-
leiöendur hafa úrval smá-
myndavéla með föstum linsum
á boðstólum. Það má skipta
þeim í þrjá aðalflokka. Fyrst
eru vélar með frekar gleiðu
sjónarhorni, 35 mm eða 40
mm, en þær henta ágætlega til
hópmyndatöku og yfirlits-
mynda en gallinn við þær er sá
Frh. á næstu opnu