Vikan


Vikan - 01.09.1994, Blaðsíða 4

Vikan - 01.09.1994, Blaðsíða 4
FRA RITSTJORA SEPTEMBER 1994 8.TBL. 56.ÁRG. KR.469 M/VSK. í áskrift kostar VIKAN kr. 399 eintakiö ef greitt er meö gíró en kr. 359 ef greitt er meö VISA, EURO eöa SAMKORTI. Áskriftargjaldiö er innheimt tvisvar á ári, sex blöö í senn. Athygli skal vakin á því aö greiða má áskriftina með EURO, VISA eöa SAMKORTI og er þaö raunar æskilegasti greiðslumátinn. Tekiö er á móti áskriftarbeiönum í síma 91-812300. Útgefandi: Fróði hf. Skrifstofa og afgreiösla: Ármúli 18, 112 Reykjavík Simi: 91-812300 Ritstjórn: Bíldshöfði 18, Reykjavík Sími: 91-875380 Fax: 879982 Stjórnarformaður: Magnús Hreggviösson Aöalritstjóri: Steinar J. Lúövíksson Ritstjóri: Þórarinn Jón Magnússon Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Guöni Reynisson Framkvæmdastjóri: HaNdóra Viktorsdóttir Útlitsteikning: Guöm. R. Steingrímsson Auglýsingastjóri: Helga Benedíktsdóttir Unniö í Prentsmiöjunni Odda hf. Höfundar efnís í þessari Viku: Þórdís Bachmann Svava Jónsdóttir Bryndís Hólm Gísli Ólafsson Halla Sverrisdóttir Loftur Atli Eiríksson Einar Örn Stefánsson Jóna Rúna Kvaran Barbara Knight María Jensen Guðjón Baldvinsson Jóhann Guðni Reynisson Þórarinn Jón Magnússon Myndir í þessari Viku: Bragi Þór Jósefsson Loftur Atli Eiriksson Gunnar Gunnarsson Bryndís Hólm o.m.fl. Forsíðumyndina af Helgu Hilmarsdóttur tók Bragi Þór Jósefsson. 4 VIKAN 8. TBL. 1994 í ÞESSARI VIKU: MARTROÐ HEIMILISOFBELDIS HVENÆR GETUR VERIÐ RÉTTLÆTANLEGT AÐ LÚSKRA Á FRÚNNI? Ifyrra gekk kona inn á lögreglustöð, illa útleikin, og sagðist ætla að kæra sambýlismann sinn. Þá sagði vaktmaðurinn: „Guð minn góður, hvað gerðir þú til að fá þessa útreið?" Þessi fáu orð lögreglumannsins segja meira en margt annað um skekkt viðhorf þjóðfé- lagsins til ofbeldis á heimil- um þar sem konur eru misk- unnarlaust barðar sundur og saman af mökum sínum. Aðalhindrunin í baráttunni gegn ósómanum er það við- horf sem virðist ríkjandi að „réttlætanlegt kunni að vera að eiginmenn slái til konu sinnar" eins og lesa mátti úr orðum áðurnefnds lögreglu- manns. Það skal tekið fram að lögreglustöðin, sem hér um ræðir, er ekki í einhverri stór- borg Bandaríkjanna. Atvikið átti sér stað hér á landi. Og ef marka má niðurstöður skoðanakannana, sem gerð- ar voru nýverið hér á landi, og þær bornar saman við sambærilega könnun, sem gerð var í Bandaríkjunum, kemur sú skelfilega stað- reynd í Ijós að það viðhorf er margfalt almennara hérlend- is en í Bandaríkjunum að réttlætanlegt kunni að vera að lúskra á eiginkonunni ef hún er ekki almennileg. Þeg- ar Vikan ræddi við Jennýju Baldursdóttur, starfsmann hjá Kvennaathvarfinu, feng- ust upplýsingar sem renna stoðum undir þann hrollvekj- andi grun að íslenskt þjóðfé- lag sé hér statt á villigötum. Hvenær getur það verið rétt- lætanlegt að konu sé mis- þyrmt af maka sínum? Og þá má líka spyrja: Hvenær telst hún réttdræp? í Bandaríkjunum er al- menningur furðu lostinn yfir þeim tíðindum að stórstjarn- an O.J. Simpson, sem elsk- aður hefur verið og dáður sem einstakur Ijúflingur með blítt bros, hafi beitt fyrrver- andi eiginkonu sína heiftar- legu ofbeldi á hjúskaparár- unum og allt bendir til þess að það hafi verið hann sem myrti hana á hrottalegan hátt fyrir stuttu. Vikan skoðar þær uppiýsingar, sem komið hafa fram í máli Simpsons, og birtir jafnframt umsögn sálfræðings sem stjórnaði viðamikilli bandarískri rann- sókn á afbrotamönnum fyrir nokkrum árum. Þar kemur fram að margir morðingjar hafi þörf fyrir aðdáun og eft- irtekt. Margir þeirra séu hæfileikamiklir og duglegir, kalli sig jafnvel trúaða. Þeir geti verið hrífandi og þannig blekkt fólk illilega. [ viðtalinu við Jennýju Baldursdóttur, sem fléttað er inn í frásögnina af máli Simpsons, kemur einmitt fram stutt lýsing af þessum toga. Lýsing á manni sem virtir aðilar í þjóðfélaginu voru tilbúnir til að verja full- um fetum - þó að eiginkon- an hafi flúið á náðir Kvenna- athvarfsins afar illa leikin eft- ir hrottaskap hans. Hún bar tugi brunasára eftir sígarettuglóð! Þá er einnig litið á mál sem bandarískir dómstólar hafa nú til meðferöar og snýst um ásakanir fyrrver- andi eiginkonu popparans Axl Rose, söngvara hljóm- sveitarinnar vinsælu Guns N'Roses. Ófagrar lýsingar á martröð heimilisofbeldis. í Bandaríkjunum hafa fjöl- miðlar gert sér mikinn mat úr réttarhöldum yfir þeim O.J.Simpson og Axl Rose og illri meðferö þeirra á fyrr- verandi eiginkonum. Áhugi fjölmiðlanna stafar af því að hér er um að ræða fræga menn. Þau samtök vestan hafs, sem unnið hafa viö að vekja almenning til meðvit- undar um bága réttarstöðu kvenna, sem búa við ofbeldi og ógnanir hrottafenginna maka, hafa fagnað þeirri umræðu sem réttarhöldin hafa hrundið af stað en nota tækifærið til að minna á að hér sé ekki um einsdæmi að ræða. Dæmin séu um tvær milljónir talsins í Bandaríkj- unum - og árlega séu 1400 konur myrtar af eiginmönn- um eða sambýlismönnum. Hvað höfðu þær gert til að fá slíka útreið?!!! Skyldi sá dagur renna upp að almenningur á íslandi átti sig á því að það geti ekki tal- ist til sjálfsagðra hluta að konur séu „tuktaðar til“ af mökum sínum og að sltk martröð geti ekki flokkast undir réttlætanlegar athafnir í skjóli friðhelgi heimilisins. Fjölmargar konur, sem leita á náðir Kvennaathvarfsins, kvarta sáran undan því skilningsleysi sem þær mæta oftast hjá sínum nán- ustu sem forðast að veita þeim skilning og stuðning. Grein Vikunnar er þarft innlegg í þá baráttu sem Kvennaathvarfið stendur í og miðast að því að valda nauðsynlegri hugarfarsbreyt- ingu gagnvart því ofbeldi sem allt of víða tíðkast á Þórarinn Jón Magnússon ritstjóri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.