Vikan


Vikan - 01.09.1994, Blaðsíða 37

Vikan - 01.09.1994, Blaðsíða 37
verkstæði áður, að ég held. - Eru uppsetningin og áhorfendasvæðið þá óhefð- bundin? - Já, það má segja að allt svæðið sé eitt leiksvið, en áhorfendur eru settir út í eitt hornið! Þetta er mjög vel gert allt saman, leikmynda- deildin hefur staðið sig með miklum sóma. SUMARVINNA FYRIR UNGA LEIKARA - Fáið þið einhverja styrki til verksins? - Já, Sumarleikhúsið er á vegum Reykjavfkurborgar. Borgin tók þetta að sér og borgar brúsann. Krakkarnir fá laun frá borginni og hug- myndin er að þetta sé hvort tveggja í senn, atvinnuskap- andi og listskapandi fyrir ungt fólk í Reykjavík. Þeir, sem sóttu um að komast í þetta verkefni, urðu að vera atvinnulausir og á aldrinum 16 til 20 ára. Og þetta er allt skólafólk, sem hefur flest eitthvað verið í leiklist. U-LISTINN SEM EKKI VARÐ Það vakti nokkra athygli í vor að Dagur Gottskálk og félagar tilkynntu að þeir hyggðust bjóða fram lista ungs fólks til borgarstjórnar- kosninga. Ekkert varð þó úr framboðinu. En hvað varð til þess að kveikja þessa hug- mynd? - Hún kviknaði bara í vinahópnum, segir Gotti. - Og markmiðið var aðallega að vekja athygli á ungu fólki og baráttumálum þess. - Var einhver alvara í þessu, eða var þetta bara grín? - Ja, það var farið að tala um þetta og einhvern veginn kvisaðist þetta út. Einn dag- inn hringdi í mig blaðamaður frá Morgunblaðinu og spurði um þetta framboð. Þá voru góð ráð dýr þannig að við ákváðum að láta slag standa og skella okkur út í framboð. Svo ákváðum við eftir langa umhugsun að draga okkur I hlé en við héldum þó báðum stóru framboðunum í spennu um tíma! - Var ykkur nokkuð mút- að til að hætta við? - Það er ekkert gefið upp, segir Gotti og glottir. - En Sumarleikhúsið, það tengist þessu ekki? Hlupu menn nokkuð til og lofuðu að styrkja ykkur til að losna við framboðið? - Nei, alls ekki, síður en svo, segir Gottskálk Dagur Sigurðarson og er nú svo al- varlegur og heiðarlegur á svipinn að við hreinlega verðum að trúa honum. - En þið hefðuð getað boðið fram, eða hvað? - Já, já. Og það er aldrei að vita hvað félagar mínir gera í næstu Alþingiskosn- ingum. Það má alltaf búast við því að U-flokkurinn skjóti upp kollinum! - Já, þið hafið ætlað að hafa U fyrir ungt fólk . . .? - Já, U var listabókstafur- inn okkar. BÚINN AÐ FÁ UPP FYRIR HÁR AF LEIKLIST! - Svo við snúum okkur aftur að leiklistinni. Hvað er svona heillandi við hana? - Núna þessa dagana veit ég satt að segja ekki af hverju hún heillar mig! Ég er alveg búinn að fá upp fyrir hár af henni, segir Gotti og bendir á sitt íðilfagra, síða og nú eldrauða hár. En í alvöru talað, þá er ég búinn að vera í þessu í mörg ár og þetta er alltaf jafn spennandi. Ef vel gengur, þá fær maður mikla ánægju út úr leiklistinni. Kannski er I þetta bara hugmyndaskortur hjá mér að láta sér ekki detta eitthvað nýtt í hug! En leiklistin er skemmtileg þeg- ar vel gengur og svo koma auðvitað líka erfiðir tímar í henni. - En framtíðin, hún teng- ist leiklistinni? - Já, það held ég. Annars er ég enn svo ungur að það tekur því ekki að vera gera stórar framtíðaráætlanir í bili. Nú er ég bara upptekinn við að lifa lífinu, segir þessi geðþekki, hvíti víkingur sem nú er orðinn rauðhærður - f bili - til að þóknast leiklistar- gyðjunni. □ Hressileg mynd af Gottskálki Degi á hestbaki. Myndin var tekin til kynningar á honum sem Ijósmynda- fyrirsætu erlendrar umboös- skrifstofu fyrir all nokkru síðan. 8. TBL. 1994 VIKAN 37 LEIKLIST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.