Vikan - 01.09.1994, Blaðsíða 29
SKOP
Gamall maður, sem hafði
farið í fyrsta skipti í bíó, kom
sneyptur til baka.
„Hva, var ekki gaman í kvik-
myndahúsinu?" spurði dóttir
hans.
„Það hugsa ég,“ svaraði
karlinn, „Ég komst bara
aldrei þangað inn því ég
þurfti alltaf að snúa við til að
kaupa nýjan miða!“
„Og hvernig stóð á því?“
„Það var einhver gaukur í
dyrunum sem reif alltaf mið-
ann minn þegar ég ætlaði
inn. .
Fjölskyldan fór saman á
sólarströnd. Þegar þangað
var komið stakk pabbinn
sér til sunds í sjóinn.
„Mamma! Sjáðu pabba,
hann er að synda. Má ég
líka?“
„Nei, vinur, ekki gera það.
Þú ert ekki tryggður eins
og hann!“
Tveir kokhraustir voru að ríf-
ast smávegis:
„Ef þú þegir ekki skal ég láta
þig éta allt sem þú segir ofan
í þig aftur!“
„Ertu að meina það?“
„Auðvitað!"
„Djúpsteiktar rækjur, glóðuð
piparsteik, rjómaís með jarð-
arberjum. . .“.
„Jæja, sonur sæll,“ sagði
pabbinn sem var að koma
heim úr langri sjóferð.
„Hvað hefurðu nú verið að
læra í skólanum meðan ég
var í burtu?“
„Dönsku," svaraði stráksi
kokhraustur.
„Jamm, og hvað fleira?"
„Algebru."
„Nú, já! Algebru, segirðu.
Það hlýtur að vera skrýtið
mál. Hvernig segir maður
„Halló“ á algebru...?“
Mestu mistök, sem kona
getur gert, eru þau að gift-
ast manni sem gerir engin.
Að borga iðgjöld til trygg-
ingafélaga er skringilegur
sparnaður og líklega sá eini
af þeim meiði sem maður
vonar að maður fái aldrei til
baka!
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
bjwáis je jeuunuo>j j?h '9 „!JBu60jpjno!u“ me u!P|ofjeB6n|6e|UJ!y 'S !UuniS!>|B66n|6 jn
uujpoq je uuunuodeuJ9ig p iununp|ofie66n|6 9 jn6u©| J0 jnjsuAiu p0>|>!3 £ 'ujnue>|>|ef
je jeujej jeujnjoi z ujpou J0 uejQeig :epuÁiu hiiuj 9 ©IQJO ejeg je6uwÁ0jq jepiepi.ua
STJORNUSPA
HRÚTURINN
21. mars - 20. apríl
Annríki á heimilinu er ráðandi
um þetta leyti og sumt af því tengist
umtalsverðri breytingu á heimilinu og
nánasta umhverfi þínu. Jafnvel er von
á nýjum einstaklingi í líf þitt. Þótt þú
hafir haft nokkuð fyrir þessum breyt-
ingum þá áttu enn eftir að eiga í
nokkrum vandræðum með að koma
þeim í almennilegar skorður.
NAUTIÐ
21. apríl - 21. maí
Þú munt hafa gott vald á
samskiptum við annað fólk þennan
mánuðinn. Þetta gæti til dæmis nýst
þér við að efla samstarfsfólk þitt til
frekari dáða. Ástin gæti blómstrað en
mikill tilfinningahiti gæti þó hleypt
snurðu á þráðinn. Þessar tilfinningar
má alls ekki byrgja inni og mikilvægt
að þið ræðið málin.
TVÍBURARNIR
22. maí - 22. Júní
Þú verður á kafi í fjármálun-
um. Þrátt fyrir að tekjurnar hafi jafnvel
aukist upp á síðkastið þá hafa út-
gjöldin að öllum líkindum fallið í þann
sama farveg. Fjárfestu nú af skyn-
semi til framtíðar. Þú færð útrás fyrir
sköpunargleðina en gættu þín samt á
skyndiákvörðunum.
KRABBINN
23. júní - 23. júlí
Atburðir í kringum þig verða
til þess að þér finnst atorkan streyma
óhindrað um þig. Fjölskyldan og ef til
vill góðir gestir halda uppi fjörinu í
kringum þig. Þú gætir fundið fyrir ein-
hverri innri spennu á tímabilinu frá
sextánda til tuttugasta og fjórða þegar
forgangsatriði fara að togast á fyrir
þér. Mánuðurinn einkennist af sterk-
um tilfinningum.
UÓNID
24. júlí - 23. ágúst
Nú gætirðu farið að finna fyrir
spennu á heimilinu og það er í eðli
sínu bæði jákvætt og neikvætt. Það,
sem lýtur að ákvörðunum þínum og
ástvina þinna um framtíðina, gæti
orðið til að styrkja tengsl milli ykkar
enn betur. En þið gætuð orðið ósam-
mála um ýmisleg annað og þar er
nokkur „sprengihætta". Aðalsmerki
þitt verður sveigjanleiki.
MEYJAN
24. ágúst - 23. september
Þátttaka í félagslífi verður í
miklum blóma þennan mánuð. Á
meðan léttirðu af þér fargi amsturs og
streitu og leyfir þér að njóta lífsins. Þú
þarft að fínstilla fjármálin dálítið um
miðjan mánuð og mátt ekki vanrækja
bókhaldið. ( mánaðarlok er kjörið að
fara í gegnum persónulega endur-
skipulagningu. Gefðu þér tíma fyrir
eigin þarfir og langanir.
VOGIN
24. sept. - 23. október
Nú er að losna um sultarólina
hjá þér þannig að eitthvað af fjár-
hagsáhyggjunum heyrir loksins sög-
unni til. Hafðu samt varann á þér því
jafnvægi til frambúðar er ekki langt
undan. Greiddu upp gamlar skuldir
frekar en að bruðla um of. Mikill erill
ríkir í vinnunni en þá njóta hæfileikar
þínir sín til fulls.
SPORÐDREKINN
24. október - 22. nóvember
Þó að þig langi allra mest til
að sinna þínum eigin hugðarefnum
þá er fólk í kringum þig ákaflega frekt
á tíma þinn. Þetta gæti þýtt nokkra
togstreitu fyrir þig í vinnunni þar sem
þig langar að Ijúka eldri verkefnum
jafnframt því að líta fram á veginn og
undirbyggja framtíðina. Reyndu að
umbera þetta allt saman og gefðu þér
síðan tíma til eigin ráðstöfunar.
BOGMAÐURINN
23. nóv. - 21. desember
Samtvinnuð fjármál gætu
bakað þér nokkrar áhyggjur um þess-
ar mundir og ekki útilokað að þriðja
aðila þurfi til að setja niður deilur
vegna þess. Hvikaðu hvergi frá kröf-
um þínum en fómaðu samt ekki öllu
stríðinu fyrir sigur í einni orrustunni
með því að missa sjónar á kjarna
málsins.
STEINGEITIN
22. desember - 20. janúar
Miðpunktur athygli þinnar á
eftir að tengjast einhverju í tengslum
við félagsskap þinn, annað hvort á
sviði viðskipta eða fjármála. Haltu
hugmyndum þínum hátt á lofti og
fáðu sem flesta á þitt band. Spenna
gæti skapast í einkalífinu. Reyndu að
uppræta ágreiningsefni og misskiln-
ing og kannski er heppilegast að gefa
eftir.
VATNSBERINN
21. janúar -19. febrúar
Þú ert á framabraut og ný
sambönd leiða af sér fleiri möguleika.
Víkkaðu sjóndeildarhringinn til að
geta haldið áfram uppbyggilegu innra
starfi. Farðu samt varlega í sakirnar
þegar fram líða stundir. Reyndu að
virkja hugmyndir annarra þannig að
þær reynist einnig vatn á þína myllu.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Þú skerð þig úr hópi, sem þú
hefur lengi tilheyrt, og það leiðir þig út
í ótroðnar slóðir. Finndu þessu einka-
framtaki þann farveg að þú þurfir ekki
að rjúfa tengslin við gömlu félagana.
Um miðjan mánuð verður vart nokk-
urrar spennu vegna peninga.
8. TBL. 1994 VIKAN 29
STJORNUSPA