Vikan - 01.09.1994, Blaðsíða 67
sagt sér aö Axl heföi dregið
hana út úr íbúðinni og aö
hún væri meö marbletti um
allan líkamann. „Þaö var
dapurlegt. Hún hafði alltaf
verið svo leiftrandi og nú var
það farið.“
Líkt og mörg önnur fórnar-
lömb heimilisofbeldis varði
Erin manninn sem hún segir
nú að hafi barið hana. Þegar
vinkona hennar kallaði lög-
reglu til 1986 sagði Erin að
útkallið væri ástæðulaust.
„Ég var á milli tveggja elda,“
segir Erin. „Þarna var besta
vinkona mín að reyna að
vernda mig. En Axl faldi sig
á bak við hurð. Ég var svo
hrædd að þið trúið því ekki.“
Barsmíðar Axl Rose voru
ódæmigerðar að því eina
leyti að hann hikaði ekki við
að beita ofbeldi að öðrum
viðstöddum. Heidi Richman
segist hafa séð Rose slá Er-
in í fjölmennri grillveislu í
Hollywoodhæðum 1987.
„Hann sló hana og reif í hár-
ið á henni. Hann var eins og
óður hundur,“ segir hún.
Erin neitaði lengi vel að
fara frá Axl þrátt fyrir þrá-
beiðni móður og vinkvenna.
„Ég trúði því alltaf að þetta
myndi lagast. Og ég vor-
kenndi honum. Ég hélt að ég
gæti lagað það sem hann
þurfti að líða í æsku."
í apríl 1990 kom Axl, sem
þá var fluttur af heimili
þeirra, óboðinn heim til Erin
klukkan 4 að morgni. Hann
sagðist vera með byssu í
bílnum og myndi fyrirfara sér
ef hún giftist honum ekki. Á
leiðinni til Las Vegas lofaði
hann því að berja hana
aldrei framar og skilja aldrei
við hana. Mánuði síðar hót-
aði hann skilnaði í fyrsta
sinn. Að tveimur mánuðum
liðnum barði hann hana svo
illa að hún var lögð á sjúkra-
hús.
Eftir að Erin kom af sjúkra-
húsinu var henni bannað að
hitta vini sína. Axl, sem var
orðinn auðguur maður, neit-
aði að láta hana fá peninga
eða útidyraiykil. Hún segir
að hann hafi oft læst hana
úti og hleypt henni inn þegar
honum hentaði. Erin segir:
„Ég fór inn á baðhebergi til
að gráta. Ég skrúfaði frá
vatninu svo hann heyrði ekki
í mér vegna þess að það
hefði líka hleypt honum
upp.“
Eftir að Erin missti fóstur,
Axl henti henni út úr íbúð
þeirra og hún mátti sæta enn
einum barsmiðum, var hún
loks búin að fá nóg og sleit
sambandinu í árslok 1990.
„Ég hafði ekki lengur samúð
með þeirri misnotkun sem
hann hafði orðið fyrir," segir
hún. „Mér fannst ég vera að
deyja andlega. Innra með
mér var ég að deyja.“ Erin
segir að Axl hafi miðað á
hana byssu, brotið eigur
hennar og rifið síma úr
veggjum. I eitt skipti segir
hún að hann hafi tekið allar
hurðar af í íbúð hennar svo
hann gæti fylgst með henni.
„Ég var hrædd þegar hann
kom inn, þegar hann fór,
þegar hann var ekki heima,“
segir hún.
Arið 1992 leitaði hún geð-
læknismeðferðar og af tilvilj-
un gekk Axl einnig til geð-
læknis á sama tíma. „Mér
var sagt að boðleiðir heilans
væru í einni bendu hjá mér,“
segir Axl, sem viðurkenndi í
viðtölum að hann væri man-
isk-depressívur.
í fyrra fór Erin að vera
með David Arquette, bróður
Rosönnu og Patriciu. í fyrstu
var Erin svo fælin að hún
kipptist við ef David hreyfði
sig snögglega. „Ég veit ekki
hversu oft ég hef þurft að
segja henni að ég ætli ekki
að berja hana,“ segir hann.
Það var ekki fyrr en lög-
menn Stephanie Seymour
kölluðu Erin fyrir til að bera
vitni að Erin fór að sjá sig
sem fórnarlamb. Fram að
því áleit hún barsmíðarnar
vera sér að kenna, eins og
algengt er með fórnarlömb
heimilisofbeldis. Jenný
Baldursdóttir segir: „Konur
hafa miklar ranghugmyndir
um eigin þátt í ofbeldinu og
trúa því oft aö ofbeldið sé
þeirra sök. Hafi konan engar
aðrar viðmiðanir en manns-
ins til þess að túlka það sem
hún upplifir þá heldur hún
áfram að vera fórnarlamb
þess djöfulskapar að maður-
inn sem segist elska hana,
beiti hana ofbeldi."
Vinir Axl halda því fram að
Erin sé að reyna að veröa
sér úti um peninga með kær-
unni en Erin fullyrðir að hún
sé aðeins að reyna að ná
sér upp úr þeim sálræna
skaða sem sambandið olli.
„Það gildir einu hvort ég vinn
eða tapa,“ segir hún. „Ég vil
að Axl taki við þessum sárs-
auka aftur. Ég þarf ekki að
bera hann lengur." □
G______
VERIÐ ÁN
HÚSA&
HÍBÝLA
ÁSKRIFTARSÍMI:812300
vS,
8. TBL. 1994 VIKAN 67