Vikan


Vikan - 01.09.1994, Blaðsíða 24

Vikan - 01.09.1994, Blaðsíða 24
ATVINNULIFIÐ HELGA HILMARSDÓTTIR FRH. AF BLS. 11 Helga ásamt eigin- mannin- um, Jóni Ólafssyni, og lista- rnannin- um Agli Ólafssyni viö opnun stór- verslunar Skífunnar vió Lauga- veg. aö henti mjög vel í plötu- verslun því þarna er verið aö selja skemmtiefni og fólk vill geta gefið sér tíma til aö velja. Viðskiptavinir kunna vel aö meta þetta og mér finnst þetta sjálfsögð þjón- usta við þá enda er geisla- platan sífellt að verða vin- sælli tækifærisgjöf," segir Helga. Hvers konar afþreyingu velur Helga fyrir sjálfa sig, hún sem lifir og hrærist í skemmtanaiðnaðinum? Hún segist vera lítill rokk- ari en hlusta á alls konar tónlist, til dæmis hafi hún mjög gaman af eldri tónlist eftir að hafa alist upp við hana með tveimur eldri systrum sínum. Af kvikmyndum hallast hún helst að listrænum myndum og nýtur þess að horfa á myndir með fallegri sviðsmynd, myndir á borð við Öld sakleysisins og Píanó. Helga tekur fram að hún horfi ekki á myndir eins og Tortímandann 2; það finnst henni alger tímasóun. Það er athyglisvert að orðið #tímasóun# segir, að hennar mati, allt sem segja þarf; maður sóar ekki tímanum, því hann er dýrmætur. Þeir, sem fylgst hafa með Jóni Ólafssyni, vita að hann hefur margoft talað um Helgu sem sína stoð og styttu í lífi og starfi. Er já- kvætt að hjón starfi náið saman? „Ef hjón geta á annað borð unnið saman tel ég mjög gott að þau geri það. Þú treystir engum betur en maka þínum og fyrirtækið er okkar beggja þannig að það er enginn sem hugsar betur um það en við sjálf. Að sjálf- sögðu stend ég við hlið mannsins míns í öllu því sem hann gerir og ég veit að Jón metur mig alveg að verðleikum. Ég er honum nokkuð góð aðstoð og við vinnum vel saman. Núorðið verða aldrei árekstrar í okkar starfi þótt þeir hafi vissulega verið þegar við vorum að byrja. Nú vitum við nákvæm- lega hvaða starfsvið hver og einn hefur og þau skarast ekki. Þegar við vorum bara tvö og tveir starfsmenn uppi á lofti á Laugavegi 33, urðu að sjálfsögðu árekstrar. í dag tel ég þá bara hafa verið hluta af þroskanum, hluta af því að takast á við ný og krefjandi verkefni," segir Helga. Þjóðarsálin er þannig inn- réttuð að þegar fólk nýtur mikillar velgengni vakna alls kyns tilfinningar nærstaddra og því miður margar illar. Hefurðu einhvern tímann verið að bugast þegar Jón hefur mátt sæta þungum ákúrum? „Nei, það hefur ekki komið til þess því ég held að ég sé mjög sterk kona og kalla ekki allt ömmu mína í þess- um efnum. Hinsvegar hefur stundum veriö mjög erfitt að sætta sig við neikvæða um- fjöllun og mér var nú eigin- lega allri lokið þegar Press- an kom nýverið út með Jóni á forsíðu og enn var verið að rifja upp eitthvert gamalt rugl um innherjaviðskipti. Ég gat ekki setið á mér, tók upp símann og hringdi í Friðrik Friðriksson, eiganda Press- unnar, og spurði hvernig honum myndi líða ef hann í huganum setti mynd af sjálf- um sér á forsíðuna og þar stæði: Friðrik verður ákærð- ur fyrir innherjaviðskipti og skattsvik! Skattsvik er alveg ofboðslega stórt orð að segja og sérstaklega um mann sem hefur aldrei skuldað hinu opinbera fimm- kall. Ég spurði hann hvernig hann myndi svara sonum sínum tveimur sem eru á aldur við strákinn minn, þeg- ar þeir læsu þetta. Ég ætlað- ist ekki til þess að hann svaraði mér. Mér fannst þetta bara of langt gengið. Þessi Pressugrein er að sjálfsögðu komin til út af Stöð 2. Það er verið að reyna að koma höggi á Jón en höggið er vindhögg því þeir finna ekkert á hann. Jón á þó fjölskyldu og hann á börn sem ástæða er að taka tillit til. Við getum staðið allt af okkur, við erum vön því og orðin sjóuð. Sjálf ýti ég þessu frá mér vegna þess að ég get ekkert annað gert. Að sjálfsögðu er alltaf til öf- undarfólk og fólk sem við- hefur illt umtal en ég er síð- ust til þess að heyra það þannig að ég er í toppmál- um. Annars vil ég trúa því að þessu sé lokið. Nú hefur ver- ið reynt að finna allt á Jón og ekkert fundist. Maður spyr sig hver meiningin sé hjá þessum núverandi minni- hluta því svona erjur eru ekki til annars fallnar en að skaða Stöð 2. Hinir eru hins vegar bara að þessu til að hagnast á því og þannig held ég að eigi að reka svona fyrirtæki. Þetta er náttúrulega hlutafélag og almenningseign og að sjálf- sögðu vilja allir ávaxta sitt pund.“ Þú hlýtur að nota þér þá vinnuaðferð að setja mark- mið og gera fimm ára áætl- un? „Nei, ég fæ hugmyndir og vinn úr þeim strax,“ segir Helga. „Ég er ekki mikið fyrir að setja mér langtímamark- mið, þau eru ekki mín deild. Ég er löngu búin með fram- kvæmdina áður en ég fer að kalla hana einhverju nafni. Bæði er mér eðlislægt að vera svona snögg og svo er starfsvettvangur okkar ekk- ert annað en tískubransi; ef platan er ekki seld I dag þá verður hún orðin úrelt á morgun þótt fólk kaupi enda- laust Bítlana og klassíkina. Allar hugmyndir um markaðssetningu á vöru eða verslununum sjálfum þurfa að komast mjög snöggt í framkvæmd og þessi hraði hefur loðað við mig í gegn- um árin. Ég hef því lært að vinna hratt og það er orðinn hluti af mér að gera allt með hraði.“ Helga bendir ennfremur á að Skífan sinni afþreyingu og eðli málsins samkvæmt standi ungt fólk báðum meg- in við borðið. „Skífan er hluti af skemmtanaiðnaðinum þannig að erfitt er að beita hefðbundinni gæðastjórnun sem felur í sér endalaus boð og bönn. Hvað markmið varðar eru þau fremur á þann veginn að ég reyni að sinna starfinu af alúð og heiðarleika. Mér finnst mikilvægt að maður láti gott af sér leiða. Það held ég að hjálpi manni heil- mikið og ég legg ríka áherslu á þessa þætti í uppeldi barn- anna okkar." Hvað stendur upp úr þeg- ar litið er yfir farinn veg? „Fyrst og fremst hvað okk- ur hefur gengið vel sem mér finnst alveg frábært. Við höf- um reynt að standa okkur vel og verið mjög heppin með allt sem við höfum gert. Við höfum ratað gæfuveg, bæði í einkalífi og í viðskipt- um, og ég held að ekki sé annað hægt en að þakka Guði fyrir það,“ segir Helga. 24 VIKAN 8. TBL. 1994
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.