Vikan - 20.01.1995, Page 42
Meyjan
24. ágúst - 23. september
ÞAÐ ER TÍMI TIL KOMINN AÐ TAKA AF SKARIÐ
Ársskipanin hljómar nokkurn veginn svona: Þú verður að gera
þitt ýtrasta á hverju því sviði sem þig ber niður - og þau verða
ófá. Og þú verður að gera meira til þess að skilja samskipti þfn
við aðra, sérstaklega þá sem standa þér nærri. Hverjar eru
væntingar þínar til þess fólks sem þú tengist tilfinningalega og
til þeirra sem þú umgengst í gegnum vinnuna eða á annan
hátt? Og ekki síður, hverjar eru væntingar þeirra til þín? Ef þú
ert f vafa, skaltu komast að því og sjá síðan til þess að þú lifir
upp til þeirra væntinga. Ástæðan fyrir því að þú átt að lifa upp
til væntinga annarra er sú að Satúrnus er í samskiptahúsi þínu.
Satúrnus vísar ávallt til vinnunnar, skyldnanna og lífsstarfsins.
Stjarnspekilega séð er því engin leið að sleppa. Þetta ár verður
þú að sætta þig við að gera meira fyrir umhverfi þitt en það
gerir fyrir þig. Það verður þó varla unnið fyrir gíg, vegna þess
að Satúrnus vísar lfka til langlímaáforma. Framlagið mun því
borga sig lil lengri tfma litið.
Trúlega eru einn eða tveir aðilar nálægt þér, í starl'i eða
einkalífi, sem eru erfiðir og tregir í taumi og valdabarátta gæti
komið upp. Einnig gæti hugsast að yfirmenn beittu þig þrýst-
ingi til þess að fá þig til að taka afdrifaríka ákvörðun - eða að
félagi þinn krefjist meiri athygli.
40 VIKAN