Vikan - 20.01.1995, Síða 51
kröfur á hugsun þína, málfar, skriftir eða sambönd við aðra -
einstaklinga, fyrirtæki eða hópa - er málið. Önnur svið og fyr-
irtæki sem tengjast fjölmiðlun gætu líka verið áhugavekjandi
fyrir þig. Þar gæti verið um að ræða ferðalög, umferð, bréfa-
skriftir, útgáfumál, fréttabréf, auglýsingar, póstmál og fleira.
Orkuplánetan Mars er í góðri afstöðu við Steingeilina á
tímabilunum frá 1. til 22. janúar, 26. maí til 21. júlí, 8. septem-
ber til 20. október og frá 1. lil 31. desember. Á þessum tímum
hefurðu mesta orku til að nýta og hún getur komið hlutunum í
gang. Yfirsýnin er meiri og þú átt trúlega auðveldara með að fá
innblástur og hrífast með. Það getur líka vel verið að þú kyndir
undir umhverfi þínu svo að það komist upp úr startholunum.
Venusartímabilin eru heldur ekkert til að fýla grön við. Þau
auka vinsældirnar, gera tilveruna auðveldari og skemmtilegra
að blanda geði við aðra. Þau má einnig nýta til þess að bæta
fjárhaginn. Það á við um eftirfarandi tímabil: 1. lil 7. janúar, 5.
febrúar til 2. mars (allrabest), 29. mars til 23. aprfl, 17. maí til
10. júní, 24. ágúst til 16. september, 11. október til 3. nóvember
og 28. nóvember til 21. desember.
Bjartsýnin getur aukist á þessum tímum og skapandi og
skemnitilegar hliðar tilverunnar komist í sviðsljósið. Ef þú ert
fæddur í síðustu viku merkisins verða Uranus og Neptúnus rétt
við sól þína eins og árið 1994.
Það getur haft í för með sér að þér finnst þú stundum togast
í margar áttir í einu. Úranus blæs manni í brjóst að vera forvit-
inn, öðruvísi og frumlegur, kannski meira að segja uppreisnar-
gjarn.
VIKAN 49