Vikan - 03.12.1998, Page 4
Jóhanna Haröartlottir
ritstjöríifuHtrúi
Áskriftarsími:
515 5555
(e&andt...
Útgefandi
Fróöi
Seljavegur 2,
Sími: 515 5500
Fax: 515 5599
Stjórnarformaður
Magnús Flreggviðsson
Aðalritstjóri
Steinar J. Lúðvíksson
Sími: 515 5515
Framkvæmdarstjóri
Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512
Ritstjóri
Sigríður Arnardóttir
Simi: 515 5582
Vikan@frodi.is
Ritstjóraf ulltrúi
Jóhanna Harðardóttir
Simi: 515 5637
SBIaðamaður
Þórunn Stefánsdóttir
Sími: 515 5653
Thorunn@frodi.is
Auglýsingastjóri
Björg Þórðardóttir
Sími: 515 5628
Vikanaugl@frodi.is
Ljósmyndarar
Bragi Þór Jósefsson
Gísli Egill Hrafnsson
Sigurjón Ragnar Sigurjónsson
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Grafiskir hönnuðir
Ivan Burkni Ivansson
Ómar Örn Sigurðsson
Verð ílausasölu
Kr. 399,-.
Verð í áskrift
Kr. 329,-. Pr eintak
Ef greitt er með greiðslukorti
Kr. 297,-. Pr eintak
Unnið í Prentsmiðjunni Odda
hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
Lesendur hafa haft samband
undanfarið og óskað eftir
því að karlar komi oftar
fram í Lífsreynslusögum
Vikunnar, þar sem lesandi
segir frá. „Konur eru svo
oft að segja sína hlið á málinu, en það
vantar sjónarhorn karla“, sagði einn sem
sendi mér tölvupóst um daginn. Vikan ætl-
ar að reyna að verða við þessu á næstu
mánuðum en þó verður að taka fram að
það eru langoftast konur sem hafa sam-
band og bjóðast til að segja sögu sína. En
það verður einlitt til lengri tíma og því óskar Vikan sérstaklega eftir lífsreynslusögum
karlmanna.
Eins finnst mér opinber umræða um kynin vera svart/hvít þessa dagana.
T.d. flykkjast höfuðborgarbúar á leiksýningu sem dregur upp skýra mynd af kynjun-
um; karlar eru svona - konur eru svona. Karlar geta aðeins gert eitt í einu - konur ráða
við fjölmörg verkefni á sama tíma. Og í umræðuþætti um karla og konur í Sjónvarpinu
sagði annar þáttarstjórnandinn um daginn: „Karlar eru ekki til staðar fyrir börn sín,
hvorki andlega né líkamlega." Þá slökkti ég á tækinu og fannst umræðan vera helst til
einhæf um þessi mál. Á sama tíma voru nefnilega mennirnir í mínu lífi uppi í rúmi að
iesa, það er að segja pabbinn var að lesa fyrir soninn og þeir voru þreyttir, enda ný-
komnir úr sundi, feðgarnir.
Nýlega sagði kennari í barnaskóla að börnin þyrftu ekki að læra heima um helgar því
þau væru svo oft að koma frá pabba sínum, eftir pabbahelgi, og þá væru þau æst og það
væri of mikið stress að eiga líka eftir að læra heima. Aftur fannst mér þarna dregin upp
svart/hvít mynd af heiminum. Flestir karlar búa hjá sínum börnum og sinna þeirn vel.
En við heyrum mest talað um hina hliðina. En vilji karlar koma sinni sögu á framfæri
þá eru ábendingar um efni alltaf vel þegnar. Netfangið mitt er vikan@frodi.is
Þessi Vika er að mestu helguð kökubakstri og jólaundirbúningi. Við vonum að upp-
skriftirnar að tertum, smákökum og konfekti eigi eftir að kæta bragðlaukana og að jóla-
undirbúningurinn og baksturinn verði ánœgjulegur á öllum íslenskum heimilum.
Njóttu Vikunnar
Sigríður Arnardóttir ritstjóri
Ivíhi burkní
graflskur hönrtuður
Þórurin St©fán$dóttír
blaöamaöur
Björg Póröardóttir
auglýsíngastjöri