Vikan


Vikan - 03.12.1998, Qupperneq 4

Vikan - 03.12.1998, Qupperneq 4
Jóhanna Haröartlottir ritstjöríifuHtrúi Áskriftarsími: 515 5555 (e&andt... Útgefandi Fróöi Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaður Magnús Flreggviðsson Aðalritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515 Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515 5512 Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Simi: 515 5582 Vikan@frodi.is Ritstjóraf ulltrúi Jóhanna Harðardóttir Simi: 515 5637 SBIaðamaður Þórunn Stefánsdóttir Sími: 515 5653 Thorunn@frodi.is Auglýsingastjóri Björg Þórðardóttir Sími: 515 5628 Vikanaugl@frodi.is Ljósmyndarar Bragi Þór Jósefsson Gísli Egill Hrafnsson Sigurjón Ragnar Sigurjónsson Gunnar Gunnarsson Hreinn Hreinsson Grafiskir hönnuðir Ivan Burkni Ivansson Ómar Örn Sigurðsson Verð ílausasölu Kr. 399,-. Verð í áskrift Kr. 329,-. Pr eintak Ef greitt er með greiðslukorti Kr. 297,-. Pr eintak Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir Lesendur hafa haft samband undanfarið og óskað eftir því að karlar komi oftar fram í Lífsreynslusögum Vikunnar, þar sem lesandi segir frá. „Konur eru svo oft að segja sína hlið á málinu, en það vantar sjónarhorn karla“, sagði einn sem sendi mér tölvupóst um daginn. Vikan ætl- ar að reyna að verða við þessu á næstu mánuðum en þó verður að taka fram að það eru langoftast konur sem hafa sam- band og bjóðast til að segja sögu sína. En það verður einlitt til lengri tíma og því óskar Vikan sérstaklega eftir lífsreynslusögum karlmanna. Eins finnst mér opinber umræða um kynin vera svart/hvít þessa dagana. T.d. flykkjast höfuðborgarbúar á leiksýningu sem dregur upp skýra mynd af kynjun- um; karlar eru svona - konur eru svona. Karlar geta aðeins gert eitt í einu - konur ráða við fjölmörg verkefni á sama tíma. Og í umræðuþætti um karla og konur í Sjónvarpinu sagði annar þáttarstjórnandinn um daginn: „Karlar eru ekki til staðar fyrir börn sín, hvorki andlega né líkamlega." Þá slökkti ég á tækinu og fannst umræðan vera helst til einhæf um þessi mál. Á sama tíma voru nefnilega mennirnir í mínu lífi uppi í rúmi að iesa, það er að segja pabbinn var að lesa fyrir soninn og þeir voru þreyttir, enda ný- komnir úr sundi, feðgarnir. Nýlega sagði kennari í barnaskóla að börnin þyrftu ekki að læra heima um helgar því þau væru svo oft að koma frá pabba sínum, eftir pabbahelgi, og þá væru þau æst og það væri of mikið stress að eiga líka eftir að læra heima. Aftur fannst mér þarna dregin upp svart/hvít mynd af heiminum. Flestir karlar búa hjá sínum börnum og sinna þeirn vel. En við heyrum mest talað um hina hliðina. En vilji karlar koma sinni sögu á framfæri þá eru ábendingar um efni alltaf vel þegnar. Netfangið mitt er vikan@frodi.is Þessi Vika er að mestu helguð kökubakstri og jólaundirbúningi. Við vonum að upp- skriftirnar að tertum, smákökum og konfekti eigi eftir að kæta bragðlaukana og að jóla- undirbúningurinn og baksturinn verði ánœgjulegur á öllum íslenskum heimilum. Njóttu Vikunnar Sigríður Arnardóttir ritstjóri Ivíhi burkní graflskur hönrtuður Þórurin St©fán$dóttír blaöamaöur Björg Póröardóttir auglýsíngastjöri

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.