Vikan - 21.03.2000, Blaðsíða 47
SÞINH^NDI, HöTT
OQ rJÖLli;ltKYTT
a , >
► Endurreisn Egils
Helgasonar hefur
verið með ólíkindum.
Hér segir hann frá
gáfumennaklikunni
sem hann var í á
menntaskólaárunum,
kynnum sínum af
Nóbelskáldinu, mót-
sagnakenndum
skoðunum sínum og
draum sinn um að
verða forsætisráð-
herra.
•4 21 árs stúlka, Guðný
Kristrún Guðjónsdóttir,
fékk krabbamein í höfuð
ið og gekkst undir mikla
aðgerð í fyrra. Hún er
unnusta Viktors Sveins-
sonar, hótelstjóra á Búð-
um, sem átti von á
tveimur börnum í upp-
hafi sambands þeirra.
Guðný lét það hins veg-
ar ekki spilla neinu fyrir
sér, enda ótrúlega já-
kvæð og lífsglöð.
4 Hvernig nærföt velur
kærastinn á unnustu sína
og eru þau eitthvað í líkingu
við þau sem hún velur á
sig? Þrjú pör norðan heiða
fara saman í nærfataversl-
TÓIafur Ragnar Grímsson
hefur vissulega breytt
ímynd forsetaembættisins.
Farið er að tala um fjöl-
skyldu hans sem „forseta-
fjölskylduna", enda eru tví-
buradæturnar farnar að
sinna embættisverkum með
föður sínum. Sigurður Már
Jónsson veltir vöngum yfir
frammistöðu Ólafs forseta.
• ír0- krónur 699
Mannlíf er sneisafullt af góðu efni. Lesið viðtöiin við
Rósu Björk, sem fjallar um hina hliðina á menn-
ingunni í Mósafk, Söru Vilbergsdóttur listmálara,
Halldór Fannar Guðjónsson, eðlisfræðing sem
býr til tölvuleiki hjá Atari í Silicon Valley, og bræðuma Þórhall Öl-
ver og Ólaf Þór Gunnlaugssyni sem ekki eru sáttir við íslenska
réttarkerfið en sá fyrrnefndi var nýlega dæmdur í 16 ára fangelsi
fyrir morð. Einnig er að finna í blaðinu afar áhugaverða grein um
sögu dömubindanna og aðra um sumartískuna. Bjarni Hinriksson
gerði teiknimyndasögu fyrir MANNLIF og tveir glæsilegir mynda-
þættir prýða blaðið. Annar þeirra sýnir fallegar byggingar í Reykja-
vík en fimm rithöfundar voru fengnir til að skrifa um þær. Þ.á m. era
Davíð Oddsson, Guðrún Helgadóttir og Kristín Ómarsdóttir.
Hinn myndþátturinn sýnir gleraugnatískuna sem er afar fjölbreytt
um þessar mundir.
FÆST Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM UM ALLT LAND
ÁSKRIFTARSÍMI: 515-5555