Vikan - 21.03.2000, Blaðsíða 61
FÉLL FVRIR
M' i:! i! W im
DROTTNING HEIMIUSINS
Leikarinn gamalkunni William Shatner, sem er
best þekktur sem Kapteinn Kirk í Star Trek, var
ekki lengi að jafna sig eftir fráfall eiginkonu
sinnar. Nerine Shatner drukknaði í sundlauginni
heima hjá þeim í ágúst síðastliðnum en hún
hafði átt við langvarandi áfengis- og eiturlyfja-
vandamál að stríða. Aðeins fjórum mánuðum
síðar var Shatner kominn með nýja dömu upp á
arminn. Kapteinn Kirk kannaði nýjar lendur með
Christiane Callil, 37 ára sambadansmeyju, sem
hjálpaði honum að komast yfir sorgina. Þau
hafa sést margoft saman, bæði í I\lew York og
Los Angeles, undanfarna mánuði. Christiane er
brasilísk, á tvö misheppnuð hjónabönd að baki
og var að skilja við seinni eiginmanninn eftir að-
eins fimm mánaða hjónaband þegar hún kynnt-
ist Shatner. Hann hefur reynt sitt besta til að
halda sambandinu leyndu en það reynist oft
erfitt fyrir stjörnurnar í Hollywood. Þess má geta
aö Shatner á dóttur, Lisabeth, sem er jafngömul
og ástkonan.
Aretha Franklin heldur upp á 58 ára afmælið sitt með stórveislu í Detroit hinn 24. mars, daginn fyrir
sjálft afmælið. Þangað hefur mörgum stórstjörnum úr tónlistarheiminum verið boðið en Aretha segir
að hún muni ekki syngja sjálf í veislunni. Aretha er jafnan kölluð drottning soul tónlistarinnar og henni
líkar vel við þá nafnbót. „Hvað er það besta við að vera drottning?" spurði hún sjálfa sig i sjónvarps-
viðtali fyrir skömmu. „Bara það aö vera drottning," var svarið. „Drottning soul tónlistarinnar er bara
sviðsnafn en heima fyrir er ég drottning heimilisins. Ég er sannkölluð heimilisgyðja!" Aretha segist
hafa ýmislegt á prjónunum. „Eg ætla að opna kjúklingastað sem býður upp á bestu kjúklinga i heimi."
msSk
'U-'' wfc-'tisr-Æ
ffl
l| ,
\T ''fe.-'-
* * *,, *» JhiM*ii,.
EKKIANÆGOUR
Undanfarnir mánuðir hafa verið annasamir hjá Díönu
Ross. Söngkonan gekk frá skilnaði við eiginmann
sinn, norska milljónamæringinn Arne Næss í febrúar
eftir 14 ára hjónaband. Um svipað leyti tilkynnti hún
að ætlunin væri að lífga við við Supremes söngsveit-
ina. Það verður fróðlegt að sjá hvort Diana, Mary Wil-
son og Cindy Birdsong fara aftur í tónleikaferðalag en
fyrst mun Diana þó koma fram án þeirra á stórtónleik-
urm í Madison Square Garden í New York. Hún verður
samt ekki ein á báti því þarna verða líka margar aðrar
stórstjörnur. Þetta eru svokallaðir dívutónleikar sem
tónlistarstöðin VH1 stendur fyrir hinn 9. apríl. I fyrra
voru það Tina Turner, Cher, Elton John, Whitney Hou-
ston og fleiri góðir sem tróðu upp saman og talið var
að erfitt myndi að toppa það stjörnulið. Ekki er búið að
tilkynna hverjar verði dívurnar í ár en talið er öruggt að
Ðíana verði þar fremst í flokki. Allur ágóði af tónleik-
unum rennur til tónlistarkennslu í Bandaríkjunum.
Þetta er stór vika í lífi breska tónlistarmannsins Eltons
Johns. Hann verður 53 ára hinn 25. mars en tveimur
dögum áður verður söngleikurinn Aida frumsýndur á
Broadway en hann er samstarfsverkefni Eltons og fjöl-
skyldufyrirtækisins Disney. Samstarfið hefur reyndar
ekki gengið of vel að undanförnu. Elton samdi tónlist-
ina og Disneyfyrirtækið er búið að setja háar fjárhæðir í
að gera söngleikinn að þeim flottasta sem komið hefur
á fjalirnar á Broadway. En þegar söngleikurinn var
prufukeyrður var Elton ekki ánægður. Salurinn var full-
ur af fólki þegar Elton stóð upp og strunsaði út. Hann
sagði að lögin væru ekki flutt eins og hann vildi hafa
þau. Disneyfyrirtækið ákvað að gera breytingar og
prufukeyra söngleikinn upp á nýtt - aö þessu sinni
bara fyrir Elton. Enginn annar fékk aögang til að
tryggja að viðbrögð tónlistarsnillingsins lækju ekki í
fjölmiðla. c-,
Vikan