Vikan - 21.03.2000, Blaðsíða 27
Kcglulcg hrcytlng
gctur slcgið vcrulega
Ráð 09 úrbætur
Eins og sumir eru haldnir
áfengisfíkn eru aðrir haldnir
sykurfíkn. Fíknin stafar fyrst
og fremst af þeirri góðu and-
legu og líkamlegu tilfinningu
sem sætindin leysa úr læðingi
hjá sykurfíklunum.
Ef þú verður að byrja dag-
inn á því að fá þér eitthvað
sætt eða til þess að hafa stjórn
á skapinu gætir þú verið syk-
urfíkill.
Þá gæti verið ráðlegt að
sneiða hjá sykri í nokkra daga
og sjá hvernig líkaminn
bregst við. Ef þú heldur það
ekki út þarftu e.t.v. á hjálp
læknis eða næringarráðgjafa
að halda.
Þegar vinna á bug á sykur-
fíkn eða koma í veg fyrir hana
er mikilvægt að borða reglu-
lega og verða aldrei mjög
svöng. Ef þú sleppir úr máltíð
er líklegt að orkan minnki og
þú freistist til að fá þér fljót-
tekna orku, þ.e.a.s. sætindi.
Að minnsta kosti þrjár vel
samsettar og hollar máltíðir á
dag og e.t.v. hollur aukabiti
eins og ávextir eða popp á
milli mála eru því lykillinn að
minni sykurfíkn.
Rannsóknir hafa auk þess
sýnt að aðrir orkugjafar eins
og soðin hrísgrjón, soðnar
kartöflur og hveitibrauð um-
breytast jafnar í orku en syk-
ur. Kosturinn við að grípa til
þessara orkugjafa er sá að
þeir innihalda, ólíkt sykrin-
um, trefjar, vítamín og stein-
efni. Einnig er hægt að bæla
niður hina óbærilegu sykur-
löngun með reglulegri hreyf-
ingu. Hreyfingin eykur nefni-
lega insúlínsvörun líkamans
og tryggir þar með rétt blóð-
sykurmagn í líkamanum.
Auk þess er líkamsrækt góð
fyrir sjálfstraustið og þegar
það vex verður þörfin fyrir að
leita sér huggunar í sætindum
e.t.v. minni.
Dulbúinn sykur
Þeir sem hyggjast sneiða
hjá sykrinum eftir bestu getu
ættu að lesa innihaldslýsing-
ar matvæla mjög gaumgæfi-
lega. Gott er að hafa í huga að
sykur er ekki endilega skráð-
ur sem sykur á innihaldslýs-
ingum vara. Hann getur
nefnilega verið í dulargervi!
Sykur getur verið dulbúinn
sem glúkósi, hunang, síróp,
umbreyttur sykur, tvísykra,
maltósi eða sykurreyr. Sumar
fæðutegundir, ,s.s. morgun-
korn og múslí, innihalda allt
að fjórar tegundir sykurs þótt
þær séu auglýstar sem sykur-
litlar heilsuvörur. Séu allar
sykurtegundirnar lagðar
saman getur sykurmagnið
orðið mjög hátt. Til viðmið-
unar segja næringarfræðing-
ar að ekki sé æskilegt að 100
grömm af morgunkorni eða
múslíi innihaldi meira en 10
grömm af sykri.
Þá er bara að ráðast gegn
sykurfíkninni og leggja hana
að velli.
Hársnyrti- og sólbaðsstofan
Mœtt útiit
Núpalind 1 • 2 00 Kópavogi
**betri líbcM1
Pöntunarsímar:
564-564-7
564-564-8
Afqreiöslutími hársnvrtistofu:
Mán.&fim. kl. 09.00 - 22.00
Miö/ þri. & fös. kl. 09.00 - 18.00
Laugardaga kl. 10.00 -16.00
Afareiðslutími sólbaðsstofu:
Mán. - fim. kl. 09.00 - 23.00
Föstudaga kl. 09.00 - 20.00
Laugardaga kl. 10.00 - 20.00