Vikan - 21.11.1957, Qupperneq 5
á löngu og mjóu setustofunni, sem var alltaf heldur dimm vegna þaksins
yfir svölunum, hafði upphaflega verið vœngjahurð, sem opnaðist út í litla
stofu með gluggaskoti. Fyrri íbúar hússins höfðu svo látið taka burtu
hurðina og hengja flaujelistjöld fyrir í staðinn. Ungfrú Blacklock var
nú búin að losa sig við tjöldin, svo stofurnar voru í rauninni orðnar
að einni. Það voru arinar í báðum endum, en í hvorugum þeirra logaði
eldur, þó það væri notalega hlýtt í stofunni.
— Þú hefur látið kveikja upp í miðstöðinni, sagði Patrick.
Ungfrú Blacklock kinkaði kolli. — Það er búið að vera svo rakt og
kalt að undanfbrnu. Mér fannst svo hráslagalegt í húsinu. Eg lét Evans
kveikja upp áður en hann fór.
— Þetta dýrmæta, ómetanlega koks, sagði Patrick.
— Það er rétt hjá þér, koksið er dýrmætt. En hefði ég ekki notað
það, hefðum við þurft að kveikja upp með kolum, sem eru ennþá dýr-
mætari. Kolaskömmtunarskrifstofan vill ekki einu sinni láta okkur hafa
þetta litla sem við eigum rétt á að fá vik'ulega, nema við getum full-
yrt að við höfum engin önnur ráð með að elda.
— Var ekki einu sinni gnægð af kolum og koksi handa hverjum
sem vildi? spurði Júlía með áhuga, eins og hún væri að fræðast
um fjarlæg lönd.
— Jú, og þau voru meira að segja ódýr.
— Og hver sem var gat þá farið og keypt eins mikið og hann vildi,
án þess að þurfa að fylla út nokkur eyðublöð, og það var enginn skort-
ur, er það ekki rétt?
— Jú, þá fengust allar tegundir — og það voru ekki eintómir steinar
og mylsna, eins og þetta sem við fáum núna.
— Þá hlýtur að hafa verið dásamlegt að lifa, sagði Júlía hrifin.
Ungfrú Blacklock brosti. — Já, þegar ég lít til baka, finnst mér
sannarlega að svo hafi verið. En ég er líka gömul kona. Það er ekki
nema eðlilegt að ég taki minn eigin tíma fram yfir. En þú ert svo
ung að þú ættir ekki að hugsa svona.
— Þá hefði ég ekki þurft að vinna fyrir mér, sagði Júlía. Ég hefði
bara getað setið heima, raðað blómum og skrifað bréf . . . Hvers vegna
var fólk alltaf að skrifa bréf og hverjum var það að skrifa?
— öllum sem maður hringir til núna, svaraði ungfrú Blacklock kímin.
Eg held að þú kunnir ekki einu sinni að skrifa bréf, Júlía.
— Ekki í stílnum, sem ég rakst á í bókinni ,,Bréfaskriftir“ hér um
daginn. Drottinn minn dýri! Þar vár fórskrift að því hvernig maður ætti
að hafna bónorði ekkjumanns á viðeigandi hátt.
— Ég hugsa að þú hefðir ekki kunnað eins vel að meta það að vera
heima og þú heldur, sagði ungfrú Blacklock þurrlega. Við höfðum okkar
skyldum að gegna. Annars byrjuðum við Bunny snemma að vinna. Hún
brosti hlýlega til Dóru Bunner.
— Ójá, það gerðum við reyndar, svaraði ungfrú Bunner. Ég gleymi
aldrei þessum óþekku krökkum. En Letty var svo dugleg. Hún fór úr
í viðskiptalífið, varð einkaritári hjá miklum fjármálamanni.
Dyrnar opnuðust og Philippa Haymes kom inn. Hún var há, ljós-
hærð og hæglát í framkomu. Hún leit undrandi i kringum sig í stofunni.
— Komið þið sæl, sagði hún. Er veizla? Það hefur enginn sagt mér það.
— Hún Philippa okkar veit auðvitað ekkert, sagði Patrick. Hún er
sennilega einasta konan í öllu Clipping Cleghorn, sem ekki hefur hug-
mynd um neitt.
Philippa leit spyrjandi á hann.
— Hérna hefurðu morðstaðinn, sagði Patrick í hátíðlegum tón og
baðaði leikaralega út höndunum.
Philippa Haymes virtist ekki vita almennilega hvernig hún ætti að
taka þessu.
— Hérna eru jarðarfararblómin, sagði Patrick og benti á skálarnar
með chrysanthemunum. Og ostastengurnar og olífurnar þarna á diskun-
um eru ásamt sherryinu veitingar í erfisdrykkjuna.
Philippa leit spyrjandi á ungfrú Blacklock. — Er þetta eitthvert gam-
an ? Ég er alltaf svo hræðilega klaufsk við að sjá grínið.
— Þetta er andstyggilegt grín sagði Dóra Bunner með áherzlu. Mér
er ekkert um það.
— Sýnið henni auglýsinguna, sagði ungfrú Blacklock. Ég verð að
fara út til að loka hjá öndunum. Það er orðið dimmt. Þær eru sjálfsagt
komnar inn.
— Ég skal gera það, sagði Philippa.
— Nei, nei, góða mín. Þú ert rétt að koma úr vinnunni.
— Ég skal gera það, Letty frænka, sagði Patrick.
— Nei, ég læt þig ekki gera það, sagði ungfrú Blacklock með þunga.
Þú lokaðir ekki hurðinni nægilega vel siðast.
— Ég skal gera það, Letty mín, kallaði ungfrú Bunner. Mér þykir
einmitt svo gaman að því. Ég ætla bara að fara í skóhlífar — og hvar lét
ég nú peysuna mína?
. En ungfrú Blacklock hvarf brosandi út úr stofunni.
— Þetta þýðir ekki neitt, Bunny, sagði Patrick. Letty frænka er svo
fær um allt, að hún getur aldrei látið neinn gera neitt fyrir sig. Hún
vill miklu heldur gera allt sjálf.
— Já, það segirðu satt, sagði Júlía.
—J Ég heyrði nú ekki að þú byðir neina aðstoð, sagði bróðir hennar.
Júlía brosti letilega. — Varstu ekki að enda við að segja að Letty
frænka vildi helzt gera állt sjálf. Auk þess er ég í beztu sokkunum
mínum. Hún sveiflaði upp vel sltöpuðum leggjunum, sem klæddir voru
næfurþunnum sokkum.
Framhald á bls. 1J,.
VIKAN
5