Vikan - 21.11.1957, Qupperneq 11
Úvæntur hetjuskapur
smásaga eftir DAVID NEVIN
KÍNG BARDELON hafði áhyggjur.
Ekki þó af því að hann var staddur
á óstöðugum streng, 15 metrum fyrir ofan
kollana á áhorfendunum í sirkusnum.
Það var daglegt brauð í lífi konungs
amerísku línudansaranna. Hann hafði á-
hyggjur af King litla Bardelon.
King litli var höfðinu hærri en hann
sjálfur og tvítugur að aldri — en hann var
sonur Kings og mundi þar af leiðandi
alltaf verða kallaður King litli. Barde-
lonamir voru línudansarar, fæddir til
konungsríkisins á línunum uppi 1 loftinu
— og það var einmitt þessvegna sem
King litli olli föður sínum þungum áhyggj-
um.
Bardelonfjölskyldan — faðirinn, móð-
irin og sonurinn — störfuðu nú með
„Eldingunum fljúgandi", sem King fannst
ekki vera nema svona rétt meðalskemmti-
kraftar. En þessi stelpa þeirra, hún hafði
það til að bera, sem kom áhorfendunum
til að rísa úr sætum sínum á hverri sýn-
ingu. Spring var auk þess aðeins nítján
ára gömul og bar sig fallega eins og ung-
ur kvenörn.
Þessar tvær þriggja manna fjölskyld-
ur mynduðu í sameiningu bezta línudans-
araflokk heimsins. En nú voru foreldrarn-
ir farnir að eldast og það leit ekki út
fyrir að nýtt blóð mundi yngja upp flokk-
inn í bráð. Og hvers vegna ekki? King
Bardelon hleypti brúnum, um leið og hann
sveiflaði sér af línunni og yfir á pall-
inn. Ástæðan var einfaldlega sú, að King
litli neitaði að kvænast Spring. Hann
hótaði meira að segja að yfirgefa flokk-
inn, ef faðir hans hætti ekki að leggja
að honum.
King Bardelon renndi sér 15 metra nið-
ur eftir reipinu, niður á gólf, tók ofurlítið
stökk, þakkaði fagnaðarlæti áhorfenda,
og leit á son sinn. Spring var að dansa
fræga ,,hula-hula-línudansinn“ sinn uppi
yfir þeim. „Fún verður svei mér góð eig-
inkona, þessi.“ Hann þagnqði, en þegor
King lit’i rvaraði cr.gu, lætt' hrnr. við.
„Og nún er hreinasta ríbragð á línunum
Hún gæti kannski kennt þér . . .“
King litli Bardelon þreif hranalega í
reipið og sveiflaði sér út úr samræðun-
um.
Ég hefði kannski ekki átt að segja
þetta, hugsaði King. Drengnum fer hægt
en stöðugt fram, en hann er ekki nægi-
lega öruggur og öryggið verður hver mað-
ur að öðlast upp á eigin spýtur.
Þegar King var að ganga frá áhöld-
unum um kvöldið, sá hann hvar King litli
og Spring komu í áttina til hans, og það
virtist fara vel á með þeim. Um leið og
þau nálguðust hann, lagði Spring hend-
ina á handlegginn á King litla og sagði:
„Ég hugsa að þú mundir fá meiri ferð
á þig, ef þú sveiflaðir þér örlítið fyrr í
atriðinu með stólinn.“ King heyrði að rödd
hennar var viðkvæmnisleg, þó hún létist
aðeins vera að tala um starfið.
En King litli rétti úr sér og svaraði
hvasst. „Það atriði er ágætt eins og það
er. Ég þarf ekki á
þínum ráðum að
halda.“
Spring kippti að
sér hendinni. Henni
hafði sýnilega sárn-
að. „Jæja þá.“ sagði
hún. „Hver er það
sem hefur tekið að
sér stjömuhlutverk
ið í þessum sýningum
okkar? Það er ekki óhugsandi að þú gæt-
ir lært ýmislegt af mér!“ Svo rauk hún
í burtu, meðan King litli. starði á eftir
henni, orðlaus af reiði.
King lagði hendina á herðar sonar
síns. „Hún er ákaflega snjöll," sagði hann.
„Og hana langar til að hjálpa þér.“
„Jæja? Langar hana til þess? En ég
þarf ekki á hjálp hennar að halda. Frem-
ur mundi ég hætta að ganga á línu en
að þiggja hjálp af henni!“
Þannig stóðu leikar þegar hinni árlegu
sýningarferð þeirra lauk.
Öll skemmtiatriði þurfa á einhverri
auglýsingastarfsemi að halda milli sýn-
ingarferða og samkvæmt venju hafði
King Bardelon fundið upp á því sem mundi
vekja athygli — það var línudans yfir
Colorado gljúfrinu.
Arkansasfljótið hafði grafið þetta
fræga gljúfur ofan í hamarinn. Það yrði
hægt að strengja línuna yfir gljúfrið um
30 metrum ofan við stóru hengibrúna,
sem yrði fyrirtaks áhorfendapallur —
þar sem sjónvarpsmennirnir gætu tekið
sér stöðu.
King hafði meira að segja enn snjall-
ari hugmynd í kollinum. Því ekki að láta
Spring dansa fræga hula-hula dansinn
sinn yfir gljúfrinu? Hvílíkt snjallræði!
„Það er alltof hættulegt,“ sagði King
litli, þegar faðir hans stakk upp á þessu.
En Spring mótmælti. „Það er ekkert
of hættulegt! Ég er fær um að sjá um
mig! Ég lenti ekki einu sinni í neinum
vandræðum þegar slaknaði á línunni í
B..íTninghem. AaðvitaS geri ég þettu —
það verður bara gaman.“
i^|G nú var það ákveðið. King Bardelon
vissi vel að hinn varfærni sonur hans
hafði rétt fyrir sér. Þetta var hættuspil.
Það stóð alltaf vindstroka gegnum
gljúfrið og óvenjulöng lína mundi sveifl-
ast meira en þau áttu að venjast. En
hvílík auglýsing!
Línan var dregin yfir og strengd meðan
mannfjöldinn safnaðist saman á brúnni.
Vindstroka lék um línuna, svo að hún
var farin að sveiflast næstum óhugnan-
lega mikið nú þegar. Fallega andlitið á
Spring sýndist tekið og guggið.
Hún var tilbúin og ekki lengur hægt að
snúa við* Það kvað við lúðurhljómur,
og Spring hneigði sig fyrir mannf jöldan-
um, þar sem hún stóð á pallinum. Svo tók
hún löngu jafnvægisstöngina og steig út
á strenginn. Hula-hula músik glumdi í
hátalaranum og hún byrjaði að dansa.
Þrjú hundruð metrum fyrir neðan hana
byltist kolmórauð Arkansasáin milli
hvassra klettanibbanna. Vindurinn kvein
í strengnum, og virtist fara vaxandi.
King litli horfði á og kreppti hnefana.
Spring hélt áfram út eftir strengnum,
9 metra, 12 metra, en þá byrjuðu vand-
ræðin fyrir alvöru. Línan slóst nú til og;
frá. Andlitsvöðvar hennar voru óeðlilegá
spenntir, það skein hræðsla úr augunuro
og hún gerði sig stífa í öxlunum. Dans-
inn varð að gangi með mjaðmasveiflum,
en það dugði ekki til.
King Bradelon fann hvernig maginn í
honum herptist saman. „Horfðu ekki nið
ur, gæzkan,“ hvíslaði hann. „Hægt nú
bara hægt, þú getur það. Líttu bara eklú
niður.“
En hún leit niður. Hún horfði ofan
ána, sem streymdi 30 metrum fyrir neð-
an hana, og hún kiknaði í hnjáliðunum..
Hún missti fótfestuna og féll þvert yfh
strenginn. Jafnvægisstöngin hennar kas1-
aðist í mörgum hringjum niður í gljúfr-
ið, þangað til hún splundraðist á klettun-
um fyrir neðan. Spring valt út af strengjá.
um, en hún greip með höndum og fótum
utan um hann og hékk þarna hjálpai-
vana neðan á honum og sveiflaðist til og
frá.
King Bardelon bar lófana upp að vör-
unum og hrópaði: „Komdu til baka,
Spring! Hættu við þetta og komdu. Fikr-
aðu þig áfram á höndvnum!“
En hún hreyfði sig ekld. Hún bara
liél'k þarna í 30 niS-rs. Lnð, raeð Aeif-
ingarsvip á andlitinu. l«.í nkiliist honum
að hún var stirðnuð af skelfingu — hún
gat ekki hreyft sig. Hann kallaði því:
„Stöng — látið mig fá jafnvægisstöng! “
En King litli var þegar lagður af stað út
eftir strengnum með jafnvægisstöng milli
handanna.
King hrópaði á eftir honum. En senur
hans kallaði til baka án þess að Kta vio.
„Hún tilheyrir mér, pabbi.“
King litli Bardelon gekk léttum, mjúk-
um og hröðum skrefum. Stúlkan var fai--
ín að þreytast í handleggjunum af að
halda sér uppi ög var byrjuð að renna
ofurlítið til á strengnum.
Pilturinn komst til hennar. Hann
sleppti fótfestunni og lenti klofvega ■ a
strengnum. Hann flýtti sér að ná jafn-
vægi með hjálp stangarinnar. Svo beygði
hann sig niður og tók iim axlirnar á
henni. Hún greip ennþá fastar um streng-
Framhald á bls. 11/
VIKAN
II