Menntamál - 01.04.1926, Page 14

Menntamál - 01.04.1926, Page 14
MENTAMÁL jo8 málunj', þaö sem af er þessari öld. Áriö 1924 varö Jón Magnús- son aftur forsætisráöherra og þá um leið kenslumálaráöherra, ■eins og áöur. Þeirri stööu hjelt hann til dauöadags. í kenslumálum þjóöarinnar uröu ýms stórtíöindi á þeim árum er Jón Magnússon ýmist haföi ýfirstjórn þeirra eöa náin afskifti af þeim. Hann er skrifstofustjóri i kenslumála- ráöuneytinu, þegar fræðslulögin komu í gildi 1907. Á ráð- herraárum hans eru sett lög um skipun barnakennara (nr. 75, 28. nóv. 1919). Sú löggjöf olli umskiftum um kjör barna- kennara. Veröur sennilega síöar svo talið, aö viö þá skipun hafi fyrst myndast barna- og unglingakennarastjett í landinu. Frumvarpiö var boriö fram af Jóni Magnússyni, og má kenn- arastjettin minnast þess. 1921 voru sett lög um lifeyrissjóö barnakennara. Og loks bar Jón Magnússon fram á síðasta þingi frv. milliþinganefndar frá 1921 um barnafræðslu, lítiö breytt. (L. nr. 40, 15. júní 1926). Er þar aö vísu ekki um stórfeldar breytingar aö ræöa, en ]jó nauösynlegar, og sýna þau lög ekki hvað sist stefnubreyting Alþingis gagnvart al- þýöufræðslumálum. Árásunum er hætt og farið aftur aö vinna til bóta það sem má án verulegs kostnaðarauka. Stjórnartíö Jóns Magnússonar er því viðburöarík aö þvi er fræðslulög- gjöfina snertir, og má minnast margs ]jess, sem hann ljeði sitt mikilsveröa fylgi, með þakklátum huga. Jón Magnússon var vitsmunamaður, skuldurækinn um störf sín og vildi sýna öllum sanngirni. Hann var cnginn bardaga- maöur. Og þó fastur fyrir, ]ægar svo bauð viö aö horfa, og Ijet sig hvergi. Hann var vinsæll af öllum, sem þektu hann. Hjer og þar. GóÖar bækur. Margir kennarar hafa beöiö útgefanda Mentamála aö benda ■sjer á nokkrar góöar bækur um uppeldismál. Er hjer birtur

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.