Menntamál - 01.02.1931, Side 16
3°
MENNTAMÁL
teikna og móta, og þá er ekki sízt hægt að raula vísur og læra
kvæði í sambandi við það. Efni verður að velja börnunum,
kunnugt, því er helzt tekið það, sem þau geta sett í samband
við heimili sitt og skólann. Ekki má tala um neitt, sem er skiln-
ingi barnanna ofvaxið, eða þá það, sem ekki hefir ,,praktiska“
þýðingu fyrir þau.
í móðurmálskennslunni er lestur og skrift ekki aðgreint.
Að loknu náminu (e. 4 ár), eiga börnin að geta lesið prentað
og skrifað mál, sem er við þeirra hæfi (ekki of þungskilið).
Það er ekki nóg, að geta lesið í 1)elg og biðu, heldur verða
börnin að hafa fallegt lestrarlag og réttar áherzlur og lesa
hljóðrétt, svo að það komi greinilega í ljós, að þau skilji efnið.
Börnin eiga að geta skrifað skýrar ritgerðir um létt efni, sem
þeim eru vel kunn. Skriftin á að vera læsileg, skýr og hrein-
ieg. Taka ber fullt tillit til rithandar hvers barns og bæta hana
eins og hægt er, án þess þó að eyðileggja hið sérkennilega við
hana. Það er algerlega óleyíilegt, að láta börnin æfa tverins-
konar skrift, þ. e. fegurðarskrift og snarhönd. Það eru því
ekki lengur til neinar sérstakar forskriftahækur — sem betur
fer, segja flestir þar.
Átthagafræðin er ein af aðalnámsgreinunum. Fyrstu 2 árin
eru heimkynni barnanna nægileg uj^pspretta til að tala, rita og
syngja um: Lífið heima og í skólanum, á leikvellinum, göt-
unni, túnunum og víðar. Vinna'n í borgum og í sveit, — í
höndum og í vélum. Þá kenna sögur, æfintýri, dæmisögur, barna-
visur og kvæði o. m. fl. börnunum að hugsa, tala, vinna og
leika sér. Það að teikna, móta og kippa út, eykur gleði þeirra
og skilning á lögun og litum þess, sem er í kringum þau. í
3. og 4. bekk byrjar svo hinn landafr.- og sögulegi þáttur átt-
hagafr. Reynt er að láta börnin hafa sem mest fyrir öllu sjálf.
Nú koma göngutúrarnir að góðum notum. Þeir verða líka marg-
ir, ef ekki hamlar veður. Kennarinn undirhýr þessar göngur
scm bezt hann má, og tekur þá hæði skugga- og kvikmyndir
í þjónustu sína. Nú er farið að tala nánar um áhrif sólar á
hnettina, árstíðir, tungl og stjörnur, veður og vinda, ár og vötn,