Menntamál - 01.02.1931, Qupperneq 18

Menntamál - 01.02.1931, Qupperneq 18
32 MENNTAMÁL Hér og þar. Ný landkortabók. í ráði er aö gefa út mjög vandaða íslenzka landkortabók á komandi sumri. Nú á seinni árum hafa verið mestu vandræði vegna vöntunar á hent- ugri kortabók, bæði fyrir barna- og unglingaskóla, svo að kennarar og nemendur liafa litt mátt við una. Reynt verður að sjá tii, að korta- bókin verði tilbúin áður en skólar byrja að hausti. Haraldur Björnsson, leikari hefir kennt kennurum barnaskólanna í Reykjavik upplestur í vetur; hefir hann liaft 3 hópa og um 10 kennara í hverjum hóp. 1 tíma hefir hver hópur haft á viku. Það er vandi að lesa vel upp, eti hitt er einnig mjög vandasamt, að segja sögur, svo að efnið njóti sín vel og hrifi barnið, og þyrftu kennarar að fá tilsögn i því framfegis, því að vel sögð saga eða æfintýri nýtur sín betur en lesið sé. Björn Björnsson, teiknikelinari við Kennaraskólann, liefir nýskeð boðiÖ kennurum við barnaskólana í Reykjavik að kenna þeim töflnteikning það sem eftir er vetrarins, og hafa margir kennararnir tekið þvi fagnandi. Hyggst hann að kenna i smáhópum, 4—6 í hóp. Er auðséð af þessu, að kenn- arar finna sárt til þess, hve litt þeir kunna til þessara hluta, cti það vita allir kennarar, hve afar þýðingarmikið er að sýna barninu lilut- ræna mynd af því sem um er rætt eða numið, og mikið má lífga upp kennslu með litlum krítarmola, ef bann er í höndum manns, sem með kann að fara. Islandskort handa skólabörnum og unglingutn hefir Jón Hróbjartsson kennari á ísafirði gefið út. Kortið er vel teiknað, enda er Jón mestur snillingur hér á landi i kortagerð. Það er prentað á góðan pappír. Nafnafjöldi nægir bæði barna- og unglingaskólum. Er hér bætt úr brýnni þörf og á Jón Hróbjartsson þakkir skyldar fyrir framtakið og vel unnið starf. Kortið má panta hjá útgefanda og kostar aðeins eina krónu eintakið. Menntamál. Verð 5 kr. árg. Afgr. í Arnarhvoli. Sími Arnarhvoll. Félagsprentsmiðjan.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.