Menntamál - 01.12.1951, Qupperneq 7

Menntamál - 01.12.1951, Qupperneq 7
menntamál 125 um, aS verkefnið okkar mistækist ekki, heldur yrði meðal hinna beztu, sem yrði skilað að þessu sinni.“ Starfsaðferðin virðist knýja börnin til þess að gera sem þau geta bezt. Og er það ekki einmitt þetta, sem skól- inn sækist eftir? En hinni hefðbundnu bekkjarkennslu þó mistekst, af því að hún hefur ekki þessi áhrif á börnin. Norskur kennari minntist á þetta í bréfi til mín árið 1938: „Fyrir mínum sjónum horfa málin þannig við: okkar venjubundna skólastarf með lexíunámi og þess konar er hreinasta eyðimörk, tilbreytingalaust og leiðinlegt, um fram allt leiðinlegt. Það er eins og maður verði að dragnast áfram gegnum lexíurnar. Þetta orkar hér um bil á sömu lund bæði á kennara og nemendur. — Einn góðan veður- dag tók ég því þá ákvörðun, að nú skyldi verða breyting á þessu. (Hann skipti um borð og stóla í kennslustofunni og bar þangað blóm. —) En ég var ekki ánægður að held- ur. Ég uppgötvaði seinna dálítið annað: Það, sem var að, var ekki það, að aðbúnaður væri ekki nógu góður, heldur var kennaranum sjálfum ábótavant.“ Og hann lagði upp í námsferð til að kynnast nýjum vinnubrögðum. Hugsum okkur nú, að hin venjulega starfsaðferð skól- anna, sem við bjuggum við sem börn, unglingar, kenn- aranemar og nýbakaðir kennarar — að þessi aðferð sé ekki það þjóðráð, sem við hyggjum vegna ofurþunga hefð- arinnar. Hugsum okkur, að hún sé í þess stað þrándur í götu þess, að börnin geti vaxið og þroskazt til þess að verða sjálfstætt og hugsandi fólk, góðir þegnar í lýðræðis- þjóðfélagi, sem sjá, hvað nauðsynlega þarf að gera og le&gja fúslega fram krafta sína til þess að koma því til leiðar. Bekkjarkennslan er ógnar þægileg fyrir kennarann, það er víst og satt, en hún veldur aðgerðarleysi og ósjálf- stæði hjá börnunum, og þau kúldast af henni. Þeim finnst ekki farið með sig eins og fólk í skólanum, því að þar verði

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.