Menntamál - 01.12.1951, Side 11
menntamál
129
Leikfimi 487 437
Sund 500 433
Söngur 237 243
Teiknun 362 358
Handavinna 500 460
Matreiðsla 368 293
Enska 430 375
Svörin varðandi matreiðslu og ensku hafa dálitla sér-
stöðu. Matreiðslu lærðu yfirleitt ekki nema stúlkurnar,
enda eru jákvæð svör þeirra í yfirgnæfandi meirihluta,
239 af 259 töldu hana gagnlega og 203 kváðust hafa gam-
an af henni. Nokkurar deildir lærðu ekki ensku, og svör-
uðu þær yfirleitt ekki spurningunni, svo að jákvæð svör við
ensku eru tiltölulega fleiri en kemur fram hér að
framan.
IV. spurning.
Kvíðirðu fyrir prófum?
(Greinarmunur skyldi gerður á því, hvort þau kviðu
mikið fyrir, dálítið eða ekki neitt).
Svör: 146 kváðust kvíða mikið, 267 dálítið, en 110 ekk-
ert. I svörunum kom fram mikill munur á afstöðu stúlkna
og pilta. 117 stúlkur kviðu mikið fyrir, en ekki nema 29
piltar, aftur voru þeir heldur fleiri í miðflokknum eða 142
á móti 125, hins vegar voru þeir að miklu leyti einir um
kvíðaleysið eða 94 á móti 16.
V. spurning varðaði það, hvaða verklegar greinar nem-
endurnir kysu helzt þeirra greina, sem þau lærðu lítið eða
ekki í skóla. Var vélritun þar langhæst í flokki bæði meðal
stúlkna og pilta. Að öðru leyti kusu stúlkur helzt útsaum,
en piltar tréskurð og gerð eðlisfræðitækja.
Ég sé ekki ástæðu til að rekja svörin nánar. Af þeim er
vafalaust hægt að draga ýmsar ályktanir, en ég mun að
Miestu leyti leiða það hjá mér að þessu sinni. Þó get ég ekki