Menntamál - 01.02.1973, Page 6
Kennarar og nemendur í enskutíma.
sínu þannig, að þjóðfélagið í heild fái sem bezt-
an arð af því fé, sem það leggur af mörkum til
skóla og uppeldismála í landinu.
Samband íslenzkra barnakennara (S.Í.B.) tel-
ur brýnt, að ríkisvaldið fullnýti áætlaðan frarn-
kvæmdatíma laganna til að korna á þeirn um-
bóturn í uppeldis- og skólamálum, sem frum-
varpið gerir ráð fyrir.
S.Í.B. telur það grundvallarskilyrði til þess
að hægt verði að framkvæma 9 ára skólaskyldu
og einsetinn skóla,
a) að komið verði á fót sérskólum og stofnun-
um fyrir þá nemendur, sem ckki geta stund-
að nám í almennum grunnskóla (sbr. 52. gr.
frumv.).
b) að nægilegt skólarými og sérmenntaðir starfs-
kraftar séu fyrir hendi.
S.Í.B. telur, að ákvæðin um skólarannsóknir,
skólabókasöfn, sérkennslu, ráðgjafar- og sálfræði-
þjónustu ættu að leggja traustan grundvöll að
breyttum og bættum starfsháttum í skólunum —
að J>ví tilskildu, að þau verði framkvæmd undan-
Ijragðalaust.
Auk framantalinna atriði vill S.Í.B. benda á
eftirfarandi:
1. Ein megin röksemd fyrir lengingu skóla-
skyldunnar um eitt ár, er, að með Jjví verði
námsaðstaða nemenda í dreifbýli gerð jöfn við
aðstöðu nemenda í Jjéttbýli.
S.Í.B. telur, að Jjetta eitt nægi ekki til að jafna
námsaðstöðuna. Hér verður að tryggja, að nem-
endur dreifbýlisins fái notið kennslu manna, sem
hafa sérmenntað sig til kennslustarfa. Eins og
kunnugt er, hefur reynzt erfitt að fá kennara-
menntað fólk til að sinna kennslustörfum í dreif-
MENNTAMÁL
4