Menntamál - 01.02.1973, Page 12
Það er leikur að læra.
Um 14. gr.
S.Í.B. telur óþarft að binda í lögum skilyrði
um búsetu þessara starfsmanna fremur en ann-
arra starfsmanna, sem lögin taka til.
Um 16. gr.
Með breytingartillögunni er stefnt að því, að
skólanefndirnar geti á sama hátt og fræðsluráð
verið aðilar að skiptingu landsins í skólahverfi.
Um 17. gr.
Lagt er til, að um embættisgengi skólafulltrúa
gildi sömu reglur og um embættisgengi fræðslu-
stjóra. Þar sem gera má ráð fyrir, að störf skóla-
fulltrúa verði aðallega á sviði skóla- og uppeldis-
mála, sbr. störf fræðslustjóra, er eðlilegt að tryggja
til starfsins kennara nteð nokkra starfsreynslu.
Um 18. gr.
Breytingin felur í sér að kveða nánar en gert er
í frumvarpinu á um setu skólastjóra á skóla-
nefndarfundum, er það nauðsynlegt til Jtess að
koma í veg fyrir ágreining, er komið gæti upp
síðar.
Um 19. gr.
Þarfnast ekki skýringar.
Um 20. gr.
Fyrsta og önnur breytingatillaga við greinina
er um stjórn grunnskóla. í 2. mgr. frumv. er gert
ráð fyrir, að kennararáð ásamt skólastjóra fari
með stjórn skólans. S.Í.B. telur, að yfirkennari
eigi einnig að sitja fundi skólastjórnar, og er
því lagt til, að það sé ákveðið í lögunum. í 3.
mgr. frumv. eru ákvæði um, að skólanefnd og
fræðslustjóri felli lokaúrskurð um ágreinings-
mál um stjórn skólans. Lagt er til, að hér verði
um úrskurð að ræða en ekki lokaúrskurð, þar
sem úrskurði fræðslustjóra og skólanefndar má
væntanlega vísa til menntamálaráðuneytisins,
eins og víðast kemur fram í frumv.
Vegna ákvæða um kennarafundi þykir rétt að
undirstrika nauðsyn þeirra, en hins vegar er
vafasamt, að rétt sé að binda í lögum ákvæði um
mánaðarlega almenna kennarafundi. Það hefur
mikla þýðingu fyrir skólastarfið að halda fundi,
með ákveðnum liópum kennara, ýmissa aldurs-
flokka eða námsgreina, með vissu millibili, þar
MENNTAMÁL
1Q