Menntamál - 01.02.1973, Síða 13

Menntamál - 01.02.1973, Síða 13
sem rætt er nánar um námsefni, kennsluliætti o. fl. en gert er á almennum kennarafundum. Um 21. gr. Telja verður eðlilegt, að kennarafundur eigi einnig að hafa rétt til að bera fram óskir um stofnun foreldrafélags. S.Í.B. getur ekki fellt sig við orðalag greinarinnar um, að foreldrafélög eigi „að fylgjast með skólastarfinu". Hætta er á, að slíkt mætti misnota á ýrnsan hátt. Er því lagt til, að markmið foreldrafélaga verði fyrst og fremst „að styðja og efla skólastarfið". Um 22. gr. Ekki er talin ástæða til þess að binda í lögum ákvæði um nemendaráð ákveðinna aldursfokka í grunnskóla. Rétt þykir, að hver skóli geti ákveð- ið í livaða aldursflokkum skidi stofnað nemenda- ráð, svo og hvernig það skuli skipað, hvernig stjórn skuli valin o.s. frv. Um 23. gr. Hér er lagt til, að skólar verði einsetnir fyrir nemendur 4.-9. bekkjar. Það er skoðun S.Í.B., að húsnæði fullnægi ekki kröfum grunnskólans nema það sé einsetið. Með einsetnum skóla er átt við, að starfstími nemenda sé samfelldur og í hverri kennslustofu verði einungis ein hekkjardeild, ef miðað er við það kennslufyrirkomulag, sem algengast er nú. Nauðsyn einsetins skóla er mjög brýn. Tví- og þrísetinn skóli, eins og víða tíðkast hér á landi, stendur í vegi fyrir nauðsynlegri endurnýjum á „innra starfi" skólanna. Það er skoðun S.Í.B., að útilokað sé að koma á þeim breytingum á starfi skólanna, sem frumvarpið gerir ráð fyrir að þurfi að verða, ef ekki er jafn- framt gert ráð fyrir einsetnum skóla. Á 22. fulltrúaþingi S.Í.B., sem haldið var í júní 1972, var samþykkt eindregin áskorun um, „að taka nú þegar upp öfluga baráttu fyrir ein- setnurn skóla og heija stórsókn í þessu rnáli á sem víðtækustum grundvelli og fá í lið með sér samtök foreldra, nemenda og annarra hagsmuna- hópa, sem hér eiga hlut að máli. Telur þingið, að allir framhaldsskólar landsins skuli vera ein- setnir, og unnið skuli að ]>ví í tveim áföngum, að barnaskólar verði það einnig. Verði fyrst stefnt að einsetningu í 10, 11 og 12 ára bekkjum og síðan í neðri bekkjum barnaskólanna. Jafn- framt verði nemendum og kennurum sköpuð vinnuaðstaða í skólunum, þannig að öll vinna þeirra geti farið þar fram.“ í þessu sambandi er rétt að benda á, að verði skólar einsetnir, skapast um leið vinnuaðstaða fyrir nemendur til vinnu utan kennslustunda t.d. við undirbúning námsins, sem nú fer að mestu fram á heimilunum. (Sbr. 25. gr.) Um 25. gr. Nauðsynlegt er að auka ltúsrými skólanna, sérstaklega ef nemendur eiga í framtíðinni að ljúka heimanámi í skólanum. Athygli er vakin á því, að heimanám eða nám utan kennslustunda verður ekki bundið við undirbúning fyrir næsta skóladag. Við hönnun skólahúsnæðis verður því að taka tillit til fjölbreyttra vinnuhátta í skóla. Um 30. gr. S.Í.B. telur ekki eðlilegt, að það sé sett að skil- yrði við skipun í starf skólastjóra, að hann hafi aflað sér viðbótarmenntunar, heldur megi setja skilyrði um, að liann al'li sér hennar, eftir að staða er veitt. Ákvæði frumvarpsins gæti komið í veg fyrir, að góður starfskraftur nýttist. Um 31. gr. S.Í.B. leggur til, að starfsheitið yfirkennari verði notað í stað orðsins aðstoðarskólastjóri. Orðið „aðstoðarskólastjóri" er langt og óþjált í notkun og á engan liátt fegurri eða gleggri orðmyndun en orðið yfirkennari, sem er orðið fast í sessi í ís- lenzku máli og auðskilið og tamt öllum þorra manna. Í greinargerð „er gert ráð fyrir, að felld verði niður störf yfirkennara". Þetta verður varla skilið á annan veg, en að að- stoðarskólastjóra verði falin önnur störf en þau, sem yfirkennarar liafa unnið frarn að þessu. Ef Jretta er rétt hjá nefndinni, að leggja eigi niður þau störf, sem yfirkennarar hafa haft, þá þarf að liggja ljóst fyrir, livaða störf aðstoðarskólastjöri á að vinna í skólanum. MENNTAMÁL 11

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.