Menntamál - 01.02.1973, Síða 22

Menntamál - 01.02.1973, Síða 22
vera gott, en sé svo ekki, er vafasamt, að ráðn- ingarformið eitt bæti þar nm. Það er mjög óeðlilegt, að einn starfshópur sé þannig tekinn út úr heildinni og staða hans sett á ótraustari grunn. Hitt er svo annað mál, að vel kemur til álita að ráða fleiri hópa til skamms tíma, t.d. fræðslustjóra, skólastjóra o.fl. Sú skoð- un hefur líka komið fram í þessu sambandi, hvort ekki færi vel á því, að fastir kennarar livers skóla velji sér yfirmann úr sínum liópi, sem stjórni skólanum í umboði þeirra tiltekinn tíma. Sjálfsagt er, að ákvæðin um uppsögn starfs (sbr. 33. gr.) verði með löglegum fyrirvara. Eng- in gild rök hafa verið færð fyrir því, að nauð- syn sé annarra uppsagnarákvæða fyrir starfsmenn skóla en annarra opinberra starfsmanna. Ef seina- gangur á ráðningu hefur torveldað starf skól- anna fram til þessa, þarf að finna önnur úrræði en þau að lengja uppsagnarfrest upp í sjö mán- uði. Starf skólaráðskonu er mikilvægt. Staðgóð þekking á næringargildi og hollustu matvæla, ásamt hagnýtri meðferð þeirra er þess virði, að fólk, sem ræðst til forstöðu mötuneyta, hafi við- urkennda sérmenntun til þeirra starfa. Skjóta má því hér að, hvort starfsheitið forstöðukona mötuneytis hæfi ekki betur en skólaráðskona. Verði að því horfið að gera skólaráðskonur að föstum starfsmönnum ríkisins, teljunr við óeðlilegt, að miða þá reglu við 30 nemenda mötuneyti sem lágmark. Fámennum heimavistar- skólum hefur fækkað undanfarin ár og mun trúlega fækka enn. Fámennustu heimavistarskól- arnir verða eflaust í afskekktustu byggðarlög- um landsins og ekkert sjálfsagt réttlæti í að meina ráðskonum þeirra skóla að verða fastir ríkisstarfsmenn. FTlutfallslegur jöfnuður í rekstr- arkostnaði milli einstakra skóla næst hvort sem er aldrei, ef halda á uppi byggð um landið. Ýmis ákvæði Ákvæðin um vikulegan kennslutíma nemenda virðist þurfa rækilegrar endurskoðunar við. Rétt er að benda á, að til viðbótar kennslutíma koma 15% vegna stundahléa, og auk þess sá tírni, sem þarf til undirbúnings fyrir næsta kennsludag eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Gæta verður þcss, að vinnuálag, sé ekki óhæfilega mik- ið á börn og ungfinga, ekkert síður við nám en önnur störf. Ákvæðin urn skiptingu landsins í fræðsluum- dærni auka vafalaust áhrif landshlutanna á fræðslumál þeirra, og er það til bóta. Einnig má ætla, að skiptingin stuðli að betra skipulagi og meiri hagkvæmni í rekstri skólanna. Sú skoð- un hefur komið fram, að fræðsluumdæmin fái þó ekki það vald, sem æskilegt væri. Fagna ber ákvæðum um endurmenntun og orlof kennara. En þörf er á að auka nrjög fjár- framlög í þessu skyni, til þess að sem flestir geti notfært sér það, sem í þessunr ákvæðum felst. Þá má einnig nrinnast á athyglisverð ákvæði unr starfsafslátt við 55 ára aldur, námsmat, ráð- gjöf og sálfræðiþjónustu, skólabókasöfn og auk- ið fjármagn til félagsstarfa nenrenda. Hér að framan lrefur verði drepið á nokkur atriði í frumvarpi til laga unr grunnskóla. Fá- einum meginatriðum hafa verið gerð nokkur skil, en rétt minnzt á önnur. Hér er því ekki unr neina greinargerð unr frumvarpið í heild að ræða. í lreild er frumvarpið spor fram á við, en það þarfnast lagfæringar. Það skiptir höfuðmáli, að undirstaðan sé traust, sem byggja skal á, svo að framkvæmdin fari vel úr hendi, þegar frumvarp þetta er orðið að liig- um. Frá F. H. K. Athugasemdir við frumvarp ti! laga um grurmskóla Stjórn Félags háskólamenntaðra kennara fagn- ar því að frumvarp til laga um grunnskóla skidi á ný hafa verið lagt fyrir alþingi eftir rækilega endurskoðun. Telur stjórnin, að svo margar og mikilvægar umbætur felist í frumvarpinu, að nauðsynlegt sé, að það verði að lögum þegar á þessu þingi. Má þar telja lengingu skólaskyld- unnar, dreifingu á miðstjórnarvakli í skóla- MENNTAMAL 20

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.