Menntamál - 01.02.1973, Side 30

Menntamál - 01.02.1973, Side 30
skólaskyldan er 8 eða 9 ár, lieldur þetta, sem ég nefndi. Núna setja framhaldsskólarnir 9. skólaárið og jafnvel það 10. sem inntökuskil- yrði, og ég tel miklu erfiðara að breyta frarn- haldsskólakerfinu til samræmis við núverandi skólaskyldu en að lengja skólaskylduna. Höfuð- atriðið er þó, að skólastigið og skólaskyldan fari saman. Jóhannes: Ég er þeirrar skoðunar að til lenging- ar skólaskyldu hljóti að koma. Sú þróun, sem orðið hefur í þessu efni frá aldamótum, verður ekki stöðvuð og þaðan af síður snúið við. Hins vegar tel ég, að við séum að ýmsu leyti van- búnir lengdri skólaskyldu. Ég tek undir það hjá Kristjáni, að tengingin við framhaldsnám- ið sé mjög ntikilvæg. Þó má ekki gleyma því, að skyldunámið er sú grunnmenntun, sem þjóðfélagið krefst að þegnarnir hafi, áður en námsbrautir greinast eða nárni er hætt. Andri: Ég hef verið þeirrar skoðunar og styrkzt í henni með árunum, að þau rök, sem mæla með lengingu skólaskyldunnar, séu miklu þyngri á metunum en þau, sem mæla gegn. Ég tek undir þau rök, sem hér liafa komið fram fyrir lengingu skólaskyldunnar, en vil benda á, að eit.t hefur framar öðru verið nefnt sem rök gegn þessari lengingu, og það er, að skól- inn geti ekki haft svo mikla námsaðgreiningu á 9. ári, að hann komi öllum til nokkurs þroska. Þessi uppgjafarstefna er mér lítt að skapi, ])ó að ég sé vissulega þeirrar skoðunar, að lenging skólaskyldunnar verði ekki framkvæmd á mjög skömmum tíma. Ef skólaskyldan ætti að vera misjafnlega löng, þá yrði það að vera á þann hátt, að þjóðfélaginu væri skylt að mennta þá, sem fara hægar í námi, á lengri tíma en liina. Verkmenntun Haukur: Ef við snúum okkur næst að verkmennt- uninni, þá má minna á, að í gildandi lögum um gagnfræðanám eru greinar þar sem gert er ráð fvrir bóknámsdeildum og verknáms- deildum á gagnfræðastigi. Þessar deildir urðu fárra ára gamlar. Þá langar mig að spyrja ykk- MENNTAMÁL 28 ur, af hverju þessar deildir lögðust svo fljótt niður og livort skipa eigi verknánti í afmarkað- ar deiklir eða ekki? Indriði: Ég skal ekki fjölyrða neitt um það, af hverju þessar deildir lögðust svo fljótt niður, en mér býður þó í grun, að ástæðan kunni að vera sú, að hér á landi hefur helzt ekkert nám verið metið, sem gæfi mönnum ekki síðar kost á að komast í háskóla. Menntaskólarnir hafa verið sú skólaviðmiðun, sem mótað hefur viðhorf manna til náms á þessu skólastigi. Ég held, að þetta hljóti að vera að nokkru leyti þess vegna. Andri: Þegar þessar deildir voru stofnaðar, var eins og menn héldu, að ])ær kæmu upp nokkurn veginn af sjálfu sér. Námsskrá vantaði, einnig kennara í verklegum greinum, og enginn mað- ur var ráðinn til að hafa urnsjón með þessum deildum. Þær hafa aldrei orðið fugl né fiskur, en þó hafa komið til á þessu sviði vissar athygl- isverðar aðgerðir á síðustu árum, en nær ein- göngu bundnar við Reykjavík. í grimnskólafrumvarpinu er tekin sú stefna að stofna ekki sérstakar deiklir, heldur geti nemendur valdið sér verklegar greinar allt að 2 tíma í viku í 7. bekk grunnskóla, 4—5 í 8. bekk og 7—9 í 9. bekk. Þetta bætist við vissan lágmarkskjarna í verklegum greinum, þannig, að verklegt nám getur orðið um þriðjungur alls námsins. Þetta er aðeins minna en gert er ráð fyrir í lögunum frá 1946, en megintilgang- ur menntunar á skyldustigi hlýtur hins vegar að vera almenn menntun. Verknámi hlýtur einkum að vera ætlað það hlutverk að laga sig að persónugerð og áhugasviði nemandans og búa hann undir verkleg störf og verklega skóla. Rök fyrir því að hafa hér ekki sérstak- ar deildir, eru þau, að þær gætu fengið á sig ákveðinn, sennilega neikvæðan stimpil, vegna þess hve skoðanir íslendinga á eðli menntunar eru enn rótgrónar og lireltar. Kristján: Ég held, að ein af ástæðunum til ])ess, að þessar deildir komust ekki á fót, hafi verð sú, að verknám er mklu dýrara í framkvæmd en bóknám. Það kostar tækjabúnað, stofnbún- aður hlýtur að vera talsverður og kröfur til

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.