Menntamál - 01.02.1973, Page 32

Menntamál - 01.02.1973, Page 32
Ég helcl reyndar, að það séu rniklu fleiri en yfirkennarar, sem eigi að ráða til ákveðins tíma. Það sama á skilyrðislaust að gilda um skólastjóra, fræðslustjóra og ýmsa aðra í skóla- kerfinu. Ég get heldur ekki sætt mig við það sjónarmið, að ekki megi koma á endurbótum á ákveðnu sviði, t.d. í skólum, af því að endur- bótum hefur ekki verið komið á alls staðar í þjóðfélaginu. Ef alltaf á að bíða með endur- bætur á einstökum sviðum eftir því, að lieild- arendurbætur verði gerðar, þá getur sú 1)ið stundum otðið býsna löng. Ef þetta yrði tekið upp í fræðslulög sem regla, hugsa ég, að það gæti haft áhrif á ráðningarform á öðrum svið- um þjóðlífsins. Andri: Þetta er álitamál eins og fleira, sem við höfum rætt um. Starfssvið yfirkennara hefur nokkra sérstöðu í skóla og eftir því, ltvernig yfirkennari og skólastjóri skipta með sér verk- um. Það er aðalorsökin fyrir því, að nefndin setti þarna inn tímabundna ráðningu. Ég held það sé tétt stefna að draga eitthvað úr æviráðningunni. Það er áreiðanlega vert að fara varlega í það, en ef þar yrði losað svolítið um, myndu starfsmenn að líkindmn leggja sig betur fram. Indriði: Ég tek undir flest af því, sem hér hefur komið fram, einkum það, sem Kristján Rersi sagði um þetta. Yfirkennarar njóta þeirra höfuðréttinda sem æviráðningin veitir ji.e.a.s. atvinnuöryggis. Þetta ákvæði um yfirkennara gæti gilt um skólastjóra og fleiri aðila, sem fást við stjórnunarstörf. Ég held það væri mjög æskilegt að hafa þarna meiri hreyfanleika, því að menn eru ekki jafngóðir starfskraftar ævina á enda. Framkvæmd laganna Haukur: Framkvæmd þessara laga er höfuðatriði, sem vekur margar spurningar. Hvaða ákvæði koma til framkvæmda strax og lögin öðlast gildi og hvaða ákvæði síðar? Eru einhverjir þættir þess eðlis, að erfitt verði að framkvæma þá, nema á löngum tíma? Verður erfiðara að framkvæma nýjungar, eins og ráðgjafar- og sál- fræðiþjónustu, en annað? Jóhannes: Ég held það sé töluvert undir því kom- ið, að framkvæmdin fari vel úr liendi. í fyrsta lagi þarf að tryggja skólanum hæfa starfskrafta. Þá þarf að endurbæta og auka skólahúsnæði og þá sérstaklega að reisa ýmsar sérstofnanir eins og grunnskólalögin gera ráð fyrir. Ingi: Ég tek undir það, að það veltur auðvitað allt á því, að framkvæmdin verði ákveðin og markviss. Jóhannes nefndi húsnæðismálin og starfsliðið. En það má heldur ekki gleyrna fjárhagshliðinni. Ef ekki verður veitt nægi- legt fjármagn til að framkvæma lögin, er liætt við, að þau verði aldrei nema nafnið tómt. Ég vil svo nefna það, að í frumvarpinu eru ýms- ir þættir, sem þarf að framkvæma strax, og er raunar hægt að framkvæma þá, þó að frum- varpið hafi ekki náð fram að ganga. Það þarf aðeins góðan vilja til góðra verka. Ég minni í því sambandi á ákvæðin um bókasöfn og fé- lagsstörf í skólum, svo að eitthvað sé nefnt. Kristján: Ég vil taka undir það, sem hér hefur verið sagt um framkvæmd laganna. Til lítils er að hafa góð lög, ef þau eru ekki framkvæmd nema að hálfu leyti. Ég held, að mjög nauð- synlegt sé að semja framkvæmdaáætlun mjög fljótlega um það, hvernig lögin korni til fram- kvæmda. Svo að ég víki að lengingu skóla- skyldunnar, þá hlýtur hún að koma til fram- kvæmda sem eðlilegt framhald af annarri fram- kvæmd laganna. Ég fagna því, að í breyting- unum frá 20. marz skuli vera skýrt ákvæði um það, hvenær skólaskyldulengingin á að koma til framkvæmda, og ef það hefði verið í upp- haflegri gerð frumvarpsins, hefði það sparað margt orðið og margan misskilninginn. Andri: Hversu mikilvæg sem ný lög um grunn- skóla erti, þá er framkvænrd þeirra enn mikil- vægari. Ég tel óhjákvæmilegt, að menntamála- ráðuneytið fari nú þegar að vinna að ýmsum áætlunum, sem gera ráð fyrir, að þetta frum- varp verði samþykkt á næsta þingi þ.e. 1973— 1974 ekki mikið breytt. Hér er ekki hægt að fara nákvæmlega út í það, hvenær lögin koma til framkvæmda, enda hefur það ekki fram að MENNTAMÁL 30

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.