Menntamál - 01.02.1973, Blaðsíða 34

Menntamál - 01.02.1973, Blaðsíða 34
Kveðja frá stjórn Sambands ísl. barnakennara Fimmtudaginn 25. janúar 1973 lést að heim- ili sínu í Reykjavík Skúli Þorsteinsson, fyrrver- andi námsstjóri. Skúli var formaður Sambands ísl. barna- kennara á árunum 1960—1972 og gegndi auk þess fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum fyr- ir samtökin, sat m.a. í stjórn Lífeyrissjóðs barnakennara frá árinu 1963 til dauðadags, átti mikinn þátt í stofnun Norræna kennara- sambandsins (NLS) og var formaður þeirra samtaka starfsárið 1970—1971, sat í stjórn norrænu skólamótanna um árabil og var full- trúi SÍB á heimsþingum kennara, svo eitthvað sé nefnt. Öll sín störf rækti Skúli af mikilli trúmennsku og samvizkusemi, og dugnaði hans og fórn- fýsi var viðbrugðið. Skúli var tígulegur í framgöngu, einarður baráttumaður og dreng- ur góður. Honum var annt um sóma stéttar sinnar og jók hróður hennar og virðingu, hvar sem hann kom fram fyrir hennar hönd. Stjórn Sambands íslenzkra barnakennara þakkar ómetanleg störf hans, minnist sam- starfsins við hann með virðingu og vottar ekkju hans, börnum og öðrum ástvinum dýpstu samúð sína. Kveðja frá Félagi háskólamenntaðra kennara Með Skúla Þorsteinssyni er horfinn einn af styrkustu forystumönnum íslenzkrar kennara- stéttar. Skúli var Austfirðingurað uppruna, úrStöðv- arfirði, smáu en þróttmiklu byggðarlagi, sem hefur haft orð á sér fyrir félagshyggju. Hér verður ekki rakinn æviferill Skúla, til þess hafa aðrir orðið. Þó skal þess getið, að hann lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla ís- lands árið 1932, hóf kennslu við Austurbæjar- skólann sama ár og varð skólastjóri við Barna- og unglingaskólann á Eskifirði 1939. Haustið 1957 fluttist hann til Reykjavíkur og kenndi MENNTAMÁL 32

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.