Menntamál - 01.02.1973, Side 35

Menntamál - 01.02.1973, Side 35
við Melaskólann um 7 ára skeið. Námsstjóri fyrir Austurland varð hann árið 1964 og gegndi því starfi þar til á s.l. hausti að hann varð að láta af því sakir sjúkleika. Með þessari upptalningu er þó minnst sagt um Skúla Þorsteinsson. Önnur störf hans ólaunuð munu eigi síður í minnum höfð. Strax á unga aldri gerðist hann ungmenna- félagi. Þroskaáhrif ungmennafélaganna fylgdu honum hvert sem hann fór. Hann var félags- hyggjumaður í þess orðs beztu merkingu, og fóru þar saman fóstur æskustöðvanna og eðli mannsins. Um árabil var hann formaður Ung- menna- og íþróttasambands Austurlands og varasambandsstjóri U.M.F.Í. og um leið fram- kvæmdastjóri þess. En þrátt fyrir öll þau störf, er Skúli vann landi og lýð til heilla, mun íslenzka kennara- stétt lenast minnast þeirra starfa, er hann vann í hennar þágu. Skúli Þorsteinsson var einn af stofnendum Kennarasambands Austurlands. Árið 1960 var hann kjörinn formaður Sambands íslenzkra barnakennara. Því starfi gegndi hann meðan heilsan leyfði, eða þar til á s.l. sumri. Það var á sviði menntamála og stéttarmál- efna kennara, sem ég kynntist Skúla Þor- steinssyni, og nú þegar hann er allur sakna ég þess, að samskiptum okkar skuli að fullu lokið. Skúli leit augum félagshyggjumannsins á starf kennarans. í hans augum var það eitt af mestu ábyrgðarstörfum í samfélaginu að fylgja þeim ungu fram á veg og búa þá undir fullorðins ár. Það var gott að vinna með Skúla að stéttar- málefnum kennara. Hann hafði ákveðin grund- vallarsjónarmið, sem hann hvikaði ekki frá. Hann gerði miklar kröfur til stéttarinnar. Hann vildi vel menntaða og hæfa kennarastétt, og hann gerði líka miklar kröfur fyrir hennar hönd. Hugsjónabarátta þeirra samtaka, sem hann stjórnaði í 12 ár þyggðist á menntun og i"éttindum. Skúli var skapmaður og það kom fyrir í örfá skipti að í tálknum þaut í okkar samvinnu. En það voru málefnaleg samskipti, en eigi mannvíg. Skúli gat reiðst og það svo um munaði, ef ráðist var á lítilmagnann. Það, sem framar öðru einkenndi lífsferil Skúla var, að hann markaði allsstaðar spor — allsstaðar félagslega hreyfingu. Hann ýtti við stöðnuðu umhverfi hvar sem hann fór. Nú er hann allur. Við, sem eftir stöndum söknum farins félaga, þökkum störf hans, þökkum samfylgdina. íslenzk kennarastétt mun lengi minnast hins látna heiðursmanns og foringja, Skúla Þor- steinssonar. Skúli var kvæntur Önnu Sigurðardóttur, skólastjóra á Hvítárbakka Þórólfssonar, mik- illi félagsmála- og mannréttindakonu. Það var haft á orði, að með þeim hjónum væri mikið jafnræði. Þau eignuðust þrjú börn, sem öll lifa uppkomin, hinar ágætustu manneskjur. Ég sendi eftirlifandi móður Skúla, eigin- konu hans og börnum innilegar samúðar- kveðjur. Þau hafa mikils misst, og öll sjáum við á bak mætum manni og góðum dreng. Ingólfur A. Þorkelsson. MENNTAMÁL 33

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.