Menntamál - 01.02.1973, Síða 37

Menntamál - 01.02.1973, Síða 37
♦ « Samtíningur Ósjaldan kemur Jrað fyrir, að ungir menn, sæmilegir að liæfileikum og lærdómi, komi til Reykjavíkur til jtess að taka vígslu, þó að aldrei liafi þeir eina stund í skóla verið. Annað hvort læra þeir frumatriði latínu og grísku af kennslubókum, er þeirn hafa verið fengn- ar, eða þeii fá dálitla tilsögn hjá sóknarprestinum. Fyrir brennandi lærdómsþrá og mikla kostgæfni, læra þeir eina eða tvær bækur í Ilionskviðu og megnið af Nýja testamentinu á grísku. Víða á landinu kjósa bændur heldur að láta syni sína hafa Jjenna háttinn en að taka Jrá áhættu að senda þá suður. Það er sann- reynt, að margir Jreirra, er Jrar hafa stundað nám, hafa síðan sterklega hneigzt að efasemi og vantrú. Stafar Jretta ef til vill fremur af samneyti við erlenda menn heldur en af fræðslu kennaranna. Ferðabók Hendersons, bls. 229—230. Unt kvöldið, Jtegar ég hafði tjaldað og var rétt tek- inn til að rita dagbók mína, var tilkynnt að komin væri stór lest, og komu tveir þeirra, er með hana voru að lieimsækja mig. Virtist sem Jreirn þætti ákaflega vænt um að sjá Englending, en á þessar slóðir hafði enginn landa minna komið fyrr. Annar Jressara manna var gullsmiður, alkunnur á Islandi fyrir Jiað, live smíðar hans eru ágætar, svo að Jrær jafnast nálega á við gripi hinna fremstu meistara í Kaupmannahöfn, enda Jrótt hann hafi aldrei lært þessa iðn, eða út fyrir landsteinana komið. Hann hefur líka smíðað úr án Jress að liafa liaft til Jress nokkra hjálp. Hinn virt- ist mér í öndverðu að vera sljór og lieimskur, en ekki höfðum við talað saman margar mínútur, Jregar hann tók að ræða um fjölda himinhnattanna, og Jtað' af slíkri mælsku og þekkingu, að ég nálega féll í stafi af undrun. „Og svo eru það Júpiter og Satúrnus —“ síðan hugsaði hann sig um og lagði lófann á ennið — „og reikistjarnan, sem dr. Herschel í London fann nýlega. Þessir hljóta að vera byggðir; Jreir eru sama eðlis og jörðin, Jreir eru ekki eldhnettir." Enda Jaótt Jrað væri honum vonbrigði, að ég gat ekki fullkom- lega staðhæft Jaetta, eins og hann sjálfur, taldi ég Jretta ákaflega sennilegt, en ]>að var lionum raun að eiga Jress ekki kost að hitta Sir William Herschel, því hann liafði margar spurningar fyrir hann að leggja um skyld efni. Sarna rit, bls. 363—364. F.f ég væri skólastjóri við ungmennaskóla, rnundi ég telja Jrað jafnrangt að láta deilumál nútímans órædd eins og að vekja áróðursstarfsemi fyrir ákveðn- um skoðunum á þeim. Það er gott, að nemendurnir finni, að nám þeirra geri þá hæfa til að glíma við þau vandamál, sem mest sé um deilt í heiminum. Þau finna Jiá, að skólinn er ekki rofinn úr sambandi við hið raunverulega líf. En ég mundi brýna fyrir þeim MENNTAMÁL 35

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.