Menntamál - 01.02.1973, Page 38

Menntamál - 01.02.1973, Page 38
liugsjón liinnar vísindalegu afstöðu til hagrænna við- fangsefna. Bertrand Russel: Uppeldið, bls. 190. Ég hef haft tækifæri til að kynnast árlega ungling- um á fermingaraldri svo að segja úr hverri sveit á ís- landi meðal þess fólks, sem árlega kemur héðan til Vesturheims. Og það er alls ekki neitt afhrak þjóðar- innar, sem vestur fer; það er yfirhöfuð íslenzk alþýða í fullu meðallagi. En innan um þennan unga lýð, þekkir enginn til sagnanna. Það er leitun á ungling- um á fermingaraldri, sem þekkir höfuðpersónurnar í Njálu. Svona er nú þetta, og mér dettur ekki í hug að vera að fást um það. Látum sögurnar fara, þegar þær svara ekki lengur kröfum tímans. En eitthvað annað betra, betur svarandi þörfum tímans ætti þá að koma í staðinn. Síra Jón Bjarnason í fyrirlestri í Reykjavík 23. nóv- ember 1889. Þeir, sem langaði mest til að læra að skrifa, fengu sér oft stafróf hjá prestinum og lærðu að pára eftir því. En })á voru nú ritföngin. Erfiðast var með pappír- inn. Penna mátti skera sér úr fjöðrum; þóttu gæsa- fjaðrir beztar, en þeim næsta álftafjaðrir, og svo not- uðust menn við hrafnsfjaðrir (sbr. vísuna „Þessi penni þóknast mér“) í pappírsleysinu æfðu menn sg á öllu sem hugstnlegt var t.d. Sigvaldi Jónsson skáldi, sem skrifaði mjög fagra hönd, lærði fyrst að draga til stafs á skininn hrossakjálka úti í hesthúsi (hann sagði mér það sjálfur). Daði fróði hafði fyrst ekki annað en prentletur að laga sig eftir, svo náði hann einum og einum starf eftir sendibréfum o.fl., en hönd hans bar alla ævi menjar af fyrstu gerð; prentletrinu. Marg- ir þeirra, er svona lærðu í fyrstu urðu listaskrifarar síðar. Jónas Jónasson: Islenzkir þjóðhættir, bls. 27G. MENNTAMAL 36

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.