Vorið - 01.12.1967, Qupperneq 9

Vorið - 01.12.1967, Qupperneq 9
HANNES J. MAGNUSSQN: SYSTKININ I SÓLEY Framhald. 2. EIN HEIMA. bað var farið snemma á fælur í Sóley næsla morgun, því að ýmsu þurfti að sinna. Gestur ætlaði að flytja ýmsar vörur í kaupstaðinn til að leggja þær inn í kaupfélagið. Hann átti til dæmis nokkra pakka af þurrkuðum saltfiski, sem liann þurfti að koma frá sér. Þá ætl- aði hann einnig að leggja inn ullina af fénu sínu, nokkur kílógrömm af smjöri og fáein selskinn. Það tók nokkurn tíma að bera þetta allt úl í „Svöluna“, þó að hörnin hjálpuðu til eins og þau gátu. Veður var gott, sólskin og dúnalogn, SVO að það leit út fyrir, að dagurinn ællaði að verða góður. Móðir þeirra tók til mat handa þeim, að minnsta kosti lil dagsins. Annars sagði Dóra, að það væri óþarfi. Hún gæti vel eldað ofan í þau þessa daga. Og það hefði hún vel gelað gert, því að Dóra var mesla myndar- stúlka. Loks voru þau hjón tilbúin til hrott- ferðar. Halla var í peysufötunum ín- um, en utan yfir þau fór hún í síða kápu. Gestur fór í sjóklæðin sín eins og hann var vanur, en var þó vel búinn hið innra. Börnin stóðu öll á litlu bryggjunni, þegar foreldrar þeirra lögðu frá landi og veifuðu til þeirra á meðan báturinn var enn í nánd. En síðan gengu þau öll upp á Borgina og ætluðu að fylgjast með „Svölunni“ á meðan hún var í aug- sýn. Skyggni var ágætt, svo að þau sáu til ferða bálsins ótrúlega lengi, en loks hvarf hann þeim með öllu, þegar lága eyju bar á milli. Móðir þeirra liafði mjólkað kýrnar áður en hún fór, svo að börnin þurftu ekki að sinna mjöltum þennan morgun. Þau hófu því sinn gamla leik með hús- dýrin sín sunnan í Borgarbrekkunni. Þau þóttust nú smala öllu fénu til rún- ings, því að þetta var einmitt á þeim tíma, en það tók langan tíma því að féð var margt. Þegar rúningi var loks lokið, ráku þau allt féð á afréttina til sumar- dvalar þar í frelsi fjallanna. Þegar þessu annríki var lokið í bráð- ina, settust þau niður sunnan í brekk- unni og tóku tal saman. „A ég að segja ykkur, hvað' mér datt í hug í morgun, krakkar?“ sagði Einar talsvert ibygginn. „Já, gerðu það, ef það er eilthvað merkilegt,“ sagði Dóra. „Merkilegt, ég er hræddur um það. Eg liugsa, að ykkur hafi aldrei dottið neitt jafnsnjallt í hug,“ sagði Einar og var enn leyndardómsfuilur á svip. „Láttu okkur þá heyra þessa merki- legu hugdettu þína,“ sagði Dóra. „Takið þið þá vel eftir,“ sagði Einar. VORIÐ 151

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.