Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 28

Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 28
SLUNGINN FLAKKARI Dag einn var bóndi nokkur og kona hans að vinna úti á akri sínum. Um hádegið gekk bóndinn frá til að brynna hestinum sínum. Konan ætlaði að hvíla sig á meðan, en þegar minnst varði, kom ókunnugur maður lil hennar. „Góðan daginn, Kada,“ sagði mað- urinn. „Góðan daginn,“ sagði Kada. „Hvað- an kemur maðurinn?“ Þegar hún fékk að vita, að hann hét Ero og kæmi frá öðrum heimi, sló hún með hægri hendinni á lærið af undrun. Nokkrum mánuðum áður hafði einn granni þeirra dáið, og nú vildi hún fá að vita, hvort Ero Iiefði nokkuð hitt hann hinumegin. „Ég er nú hræddur um það,“ sagði Ero. „Hann býr rétt hjá mér. Jú, honum líður sæmilega. En hann er alveg ]>lá- fátækur, vesalingurinn. Hann hefur ekki einu sinni ráð á að kaupa sér kaffi á könnuna, eða tóbakskorn.“ Nú komu tárin fram i augun á kon- unni. Hana langaði nú lil að vita, hvorl góðu verðlaun og þessa góðu ferð. Svo vil ég þakka ferðafélögum mínum fyrir ágæta samveru, sérstaklega Sveini Sæ- mundssyni fyrir, hvað hann var góður við okkur börnin og skemmtilegur ferðafélagi. Svo er þessari frásögn lokið. Ingólfur Arnarson. Ero færi aftur lil baka. Hún hefði þá kannski reynt að senda þessum gamla granna sínum eitthvert litilræði. J á, hann fór til haka, en var á mjög hraðri ferð í þetta sinn. Þegar konan heyrði þetta, tók hún jakka af mannin- um sínum. í vasanum var peningabudda, sem hún fékk Ero með öllu, sem í var. Ero var ekki seinn á sér að stinga budd- unni í vasann og kveðja konuna. Hann fylgdi lækjarfarveginum upp brekkuna og var kominn drjúgan spöl burt, þegar bóndinn kom heim með hest- inn í taumi. Konan hljóp á móti manni sínuin og sagði honum fréttirnar um ' Ero, sem hafði tekið að sér að fara með peningana til gamla og góða nágrann- ans. „Hvaða leið fór maðurinn?“ spurði nú bóndi hennar. Konan benti honum upp með lækn- um. Og áður en hún vissi af, hafði bóndi hennar stokkið á bak hestinum og reið eins og hesturinn komst á eftir mann- inum. Þegar Ero sá, að honum vai veitt efl' irför, herti hann á hlaupunum. Eftir litla stund kom hann að inyll11 > einni. Hann gekk þangað og kallaði til malarans, sem stóð í mylludyrunum: „Taktu til fótanna upp á líf og dauða- Það er að koma Tyrki, sem ætlar að drepa þig! Láttu mig fá húfuna þína, e skal láta þig fá mína í staðinn. 0 170 VORIÐ CJO. CJO

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.