Vorið - 01.12.1967, Side 10
„Mér datt í liug að við fengjum skekt-
una hans pabba og rerum úl í Lundey,
af því veðrið er svo gott. Hvernig lízt
ykkur á þelta?“
„Mér lízt vel á þetta,“ sagði Svanur.
„Eg er hræddur um að það verði leið-
inlegt að banga hér í dag.“
„Hvað segir þú, Dóra?“ spurði Ein-
ar.
„Jú, ég held, að þetta geti orðið dálít-
ið gaman,“ sagði Dóra. „Við höfum
farið þangað áður. Ætli það sé nema
svona fimmtán mínútna róður?“
„Nei, það er ekki meira,“ sagði Ein-
ar. „Og sjórinn er eins og spegill í dag.“
„Við getum kannski fengið okkur
nokkrar pysjur,“ sagði Svanur. „Það
er svo langt síðan lundinn verpti, að
ungarnir fara bráðum að skríða út úr
holunum.“
„Og svo gætum við týnt nokkur kríu-
egg í matinn,“ sagði Svanur.
„Það er nú lítill matur í kríueggjum,“
sagði Dóra. „Það munaði þá heldur eitt-
hvað um að fá nokkur æðaregg.“
„Það má ekki taka æðaregg,“ sagði
Svanur.
„Jú, við megum vel fá okkur í matinn
af því að pabbi á eyna,“ sagði Dóra.
„Er það ekki, Einar?“
„Jú, það held ég,“ sagði Einar.
„Svo höfum við með okkur mat,“
sagði Dóra, „og prímus og hitum okkur
kakó.“
„Heyrið þið, hvað húsmóðirin seg-
ir?“ sagði Svanur. „Mér lízt annars vel
á þetta. Þetta verður eins og nokkurs
konar útilega.“
„Já, þetta verður stórfínt,“ sagði Ein-
ar. „Við höfum með okkur brauð og
mjólk, eina eða tvær flöskur, og eina
flösku af vatni, ef við verðum þyrst.
„Ég skal hita kakóið, ef þið sjáið um
að hafa prímusinn með. Þið verðið að
sjá um, að hann sé ekki galtómur, strák-
ar.“
„En ættum við ekki að hafa tjaldið
okkar með?“ spurði nú Svanur.
„Jú, alveg sjálfsagt. Við höfum tjald-
ið með,“ sagði Einar. „Þetta var sniðug
hugmynd hjá Svani. „Annars held ég,
að það rigni ekki í dag, en það getur
verið mýbit, og þá er gott að liafa tjald-
ið.“
„Svo drukkum við kakóið okkar inni
í tjaldinu,“ sagði Dóra.
„Eigum við að líta á skektuna, Svan-
ur?“ sagði Einar. Dóra getur tekið til
matinn á meðan?“
„Já, við skulum gera það,“ sagði
Svanur. Svo hlupu þeir niður að víkinni
þai sem skektan var bundin við staur í
fjörunni. En það kom stundum fyrir að
faðir þeirra þurfti að róa út í Kríu-
hólma eftir kúnum, þegar hann fylgdist
ekki nógu vel með aðfallinu.
„Ég held að skektan sé í bezta lagi,“
sagði Einar. „Það þarf ekki einu sinni
að ausa hana. Þarna voru báðar árarnar
og austurstrogið. Nei, það vantaði ekk-
ert. Þarna lá líka gamall færi í skulnum.
Það mátti liggja þar. Þetta gat orðið
bezla skemmtiferð og stytti daginn.
Hann gat orðið nógu langur samt. Dag-
arnir voru ofl svo langir, þegar pabbi
og mamma voru ekki heima. Það kom
raunar ekki oft fyrir.
Drengirnir hlupu nú heim aftur og
sögðu Dóru, að allt væri í lagi með
bátinn. Síðan fóru þau að búa sig af
152 VORIÐ