Vorið - 01.12.1971, Qupperneq 14
Kristilegur lcœrleikur
Móðir með barn á handlegg fylgir eftir öðru
barni, sem leitar hjálpar fyrir nágranna, sem er
hjálparþurfi
ur yfir Alpana til þess að geta séð ljón-
ið mikla, Svissaraljónið. Ilafði hann gert
minnismerki þetta um 1100 manna sviss-
neskan lífvörð Frakkakonungs, sem lét
lífið í stjórnarbyltingunni miklu árið
1792, og nú var verið að höggva í klett
í Luzern. A leiðinni kom Albert við í
nokkrum þýzkum borgum, þar á meðal
Frankfurt og sat þar sjötugsafmæli Goe-
thes. Sunnudaginn 30. október kom hann
svo til Kaupmannahafnar. Ók hann beint
til Charlottenborgar, en þar höfðu lengi
beðið hans íbúð og verkstæði.
Mikil hátíðahöld voru í sambandi við
komu hans til borgarinnar. Aðalhátíðin
var haldin 15. október og sátu hana
þekktustu listamenn og vísindamenn
borgarinnar. Við komu lians kváðu við
fallbyssuskot, tveir stúdentar leiddu
hann í salinn og Oehlenechláger, þjóð-
skáld Dana, fagnaði honum með ræðu.
Að hátíðahöldum loknum tók Thor-
valdsen til óspiltra mála við störf sín.
Mikilfenglegust þeirra voru etv. skreyt-
ing hans á Frúarkirkjunni, postularnir
tólf, sex til hvorrar handar inn eftir
kirkjunni, Kristsmyndin fyrir háaltarinu
og margar fleiri fagrar myndir.
Thorvaldsen er ekki talinn liafa verið
neinn sérlegur trúmaður, a. m. k. ekki
framan af ævi, en eftir því, sem hann
sótti sér æ meir viðfangsefni trúarlegs
efnis, er árin færðust yfir, má gera ráð
fyrir að á hugarfari hans hafi orðið tölu-
verð breyting. Dæmi þess eru þau orð,
sem höfð eru eftir honum um Krists-
myndina:
„Einföld varð liún að vera, því að ein-
faldleikinn varir um aldur og ævi, og
þannig var Kristur. Hann mun vara uni
þúsundir ára.“
Sumarið 1820 fór Thorvaldsen að
hugsa til heimferðar. Þann 11. ágúst hélt
hann frá Höfn að loknum miklum
kveðjusamsætum. En hann hélt ekki rak-
leitt til Rómaborgar, heldur liafði hann
viðdvöl í Berlín og Dresden og var á báð-
um stöðum fagnað vel, og þaðan til Yar-
sjá í Póllandi. Yildi þá gvo til, að þar
var staddur Alexander Rússakeisari, einn
voldugastur þjóðhöfðingja veraldar i
þann mund. Tólc hann Thorvaldsen afar
vel og lét liann gera af sér brjóstmynd.
Lauk hann því verki á tíu dögum og
hlaut að listarlaunum gullhring, alsettan
demöntum. Frá Yarsjá lá leiðin til
Kraká og síðan til Trappá, en þar var
þá fundur ýmissa valdamanna Evrópu
og stýrði Alexander keisari lionum.
158
VORIÐ