Vorið - 01.12.1971, Side 61
þeir vœru komnir á grynnra vatn. Tuttugu mín-
ítum sitSar varð árekstur, og trjábolurinn nam
staðar.
„Land! Land!" lirópuðu allir himinlifandi af
gleði.
TréS liafði rekizt á hæS eina og lá þar nú
kyrrt. Aldrei munu nokkrir skipbrotsmenn hafa
fagnað meir landtöku en þeir félagar gerSu nú,
þótt því færi fjarri, aS þeir væru komnir í
aokkra örugga liöfn.
Róbert og Wilson stukku i land og æptu fagn-
aðaróp, en í sama bili heyrSu þeir félagar gam-
alkunnugt blístur, tíSur hófasláttur barst aS
eyrum þeirra utan yfir sléttuna, og von bráSar
greindu þeir för Indiánans utan úr myrkrinu.
„Talkave! ‘ ‘ hópaSi Róbert.
„Talkave!" hrópuSu allir samtímis fagnandi.
„Vinir!“ kallaSi PatagoníumaSurinn ljómandi
af gleSi.
Hann hafði vænzt félaga sinna hér, því að
hann vissi, aS straumurinn mundi bera þá í
sömu átt og hann sjálfan.
Hann faSmaSi Róbert að sér og tók innilega
í hönd allra hinna, er létu óspart í ljós gleði
sína yfir þessum endurfundum. Því næst fylgdi
PatagoníumaSurinn þeim til Indíánakofa eins
Þar nálægt, sem hafSi verið í eySi um nokkurt
skeið. I>ar logaSi eldur á arni, svo að ferða-
öiennirnir gátu orn,aS sér. Við þann eld steikti
Talkave einnig villidýrakjöt, er hann hafði afl-
aÖ sér. Og þegar ferðamennirnir litu nú til
öaka yfir allar þær ógnir, er þeir höfðu orðið
ganga í gegnum, fannst þeim það ganga
kraftaverki næst, að þeir skyldu vera komnir
^iagað heilir á húfi.
Haganel reyndi að útskýra fyrir Talkave liin-
ar nýju ágizkanir viðvík.jandi Grant skipstjóra,
en vegna þess að Indíáninn þekkti ekki Ástra-
iiUj skildi hann ekki það, sem Paganel var að
gera. En þegar hann sá, aS allir voru glaSir og
i'ovfSu björtum augum á framtíSina, gerði hann
sig ánægðan með þaS og krafðist einskis ann-
ars.
Þegar ferðamennirnir höfðu tekið sér nægi-
iega hvíld, var auðvitaS ekki um annaS aS tala
en lialda áfram. 8vo langt var nú til næsta Indí-
anaþorps, að ómögulegt var aS fá liesta eða múl-
'iý*'. Þess vegna varð að leggja af staS fótgang-
nndi. Þetta var ekki næsta langur vegur, og
Tok:
fót:
a taldi ekki eftir sér að bera einn eða tvo
gongumenn við og viS. Eunnugir töldu, að
VOR|Ð
þeir ættu að geta verið komnir austur að At-
lantshafi eftir 36 klukkustundir.
Þegar komiS var aS brottfarartímanum, var
stefnan tekin norðaustur yfir hæðirnar, og
morguninn eftir varð þess vart, aS hafið var í
nánd. Allir voru sammála um aS reyna að kom-
ast austur að ströndinni þennan dag, og var
því reynt aS hraða förinni sem mest. Klukkan
átta um kvöldið komu ferðamennirnir auga á
háa sandhóla, er báru vott um, að nú var kom-
ið að leiðarenda, og eftir litla stund barst til
þeirra svalandi liafgola.
„Hafið! Ilafið!‘ ‘ kölluðu allir í senn, og
þrátt fyrir þreytu eftir erfiðan dag flýttu allir
sér upp á næsta sandhól. En vegna þess aS þá
var orðið dimmt af nótt, gátu þeir livergi eygt
„Duncan' ‘.
„Hann hlýtur þó að vera hér/ ‘ mælti Glenvan.
„Hann hlýtur að bíða okkar hér.“
„Það munum viS fá að ganga úr skugga um
meS morgninum,“ mælti majórinn með sinni
venjulegu rósemi.
Tom Austin reyndi að kalla út til skipsins,
en fékk ekkert svar. ÞaS var allhvasst og nokk-
urt brimhljóð við ströndina, svo að hlustunar-
skilyrði voru ekki góS. Það var lítið um góða
lendingarstaði á ströndinni og ekki hættulaust
fyrir skip að koma mjög nálægt landi. Vel gat
þvi verið, að „Duncan' ‘ lægi nokkuð utarlega
af þeim ástæSum.
Það var tilgangslaust að þreyta sig á frek-
ari köllum. Þeir urðu að bíða morgunsins og
reyna að nota þann tíma til hvíldar og svefns.
Þeir lireiSruðu þvi um sig í sandinum og reyndu
aS sofna.
Glenvan gat þó ekki sofnað. Hann átti erfitt
með að sætta sig við þá tilliugsun að verða að
liggja hér, þegar kona hans var ef til vill nokk-
ur hundruð faðma frá honum. Þetta var í fyrsta
skipti, sem þau höfSu orðið að skilja um lengri
tíma, síðan þau giftust, og því fyrr sem vænta
mátti endurfundanna, því heitar þráði liann
hana.
„Duncan'1 liafði haft nægan tíma til aS sigla
suður fyrir GóSvænishöfða og til austurstrand-
arinnar þá 30 daga, sem ferSin yfir sléttuna
hafði tekið. Að vísu hafði veSur oft verið 6-
hagstætt, en „Duncan“ var gott skip, og skip-
stjórinn góður sjómaður.
Hann reikaði eirðarlaus um ströndina alla
nóttina og hlustaði eftir hverju hljóði. Stundum
205