Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.05.1919, Qupperneq 8

Bjarmi - 01.05.1919, Qupperneq 8
72 BJARMl að heiminn fyrir hann, þann, er öllu stjórni með orði máttar sins (Hebr. 1, 2.-3.). Þar er hinum eingetna tyst fyrir oss þannig, að hann sje almáttugt orð Guðs, er Guð hafi eins og birt með veru sína og framkvæmt ineð því öll verk sín; það hafi verið 1 upphafi og verið hjá Guði — og ver- ið Guð; allir hlutir sjeu fyrir það gjörðir, og án þess væri ekkert til, sem til er orðið (Jóli. 1, 2.—3. — Hið eilifa Ijós hafi í honum skinið, og þess vegna sje hann hið sannu Ijós, er upplýsi alla menn (Jóh. 1,9.) Kristna Icöllum vjer oss sökum þess, að vjer álítum Jesúm Krist vera þann aðal-hyrningarstein, er öll vor trú sje á bygð, — sökum þess, að vjer viðurkennum, að af engum öðr- um sje bjálpræðis að vænta, því að ekkert annað nafn sje mönnunum gefið undir himninum, er oss megi hólpna gjöra (Post. 4, 11. —12.). — sökum þess, að vjer viðurkennum að Guð haíi gefið honum það nafn, sem er æðra öllum nöfnum, svo að fyrir Jesú nafni skuli hvert knje beygja sig, hvort sem eru á himni eða jörðu eða undir jörðunni (Fil. 2, 9.—10.). En hvað höfum vjer fyrir oss í því, að auðsýna honum slíka lotn- ingu? — Hvað hefðum vjer fyrir oss í því, að heiðra Soninn eins og Föð- urinn (Jóh. 5, 23.), ef hann vœri vor jafningi, ef hann vœri Guðs barn á sama hátt og sjerhver af oss á að vera þaðlJ. Og enda þótt hann væri langt fyrir ofan okkur mennina, en væri þó sköpuð skepna (eins og vjer), og ekki œðri öllum hlutum, fyrri öllum hlut- um og viðlialdari allra hluta, og væri það ekki vilji Föðursins, að öll fylling skyldi i honum búa (Kól. 1, 17.—19.), og væri hann ekki kraflur Guðs og speki (I. Kor. 1, 24.) og ætti hann ekki alt, sem Faðirinn á (Jóh. 16, 15.)? Vissulega fremdum vjer þá afguða- dýrkun, er vjer beygjum knje vor fyrir Jesú, þvi að vjer eigum að tigna Drotlinn Guð vorn og þjóna honum einum (Matt. 4, 10). Sje þjer, maður, alvara að kalla þig kristinn, og hafirðu satt að mæla, er þú kallar þig svo, þá kemur, það til af því. að þú þekkir engan, er þú getir aðhyllst, nema Jesúm Krist, því að hann hefir orð eilífs lífs (Jóh, '6. 68.). Þú kallar hann því Meistara og Frceðara og kannast við, að Kristur sje einn leiðiogi vor (Matt. 23, 10.). En hvað hefir þú fyrir þjer í því, að meta hann einan meir en alla aðra, — láta leiðast af orðum hans eins og af Guðs orðum, — láta hann leggja hömlur á reykular hugrenningar þín- ar og þora ekki að brjóta þau boð- orð, sem hann hefir sett þjer? — Hvað hefðir þú fyrir þjer í þessu, nema að hann sje þannig sameinaður Föðurnum, að liann sje honum jafn- frjáls af hverskonar villu og allri synd — og nema þau orð, sem vjer heyrum, sjeu ekki lians orð, sem manns, heldur Föðursins, sem sendi hann (Jóh. 14, 24.)? — Hvaðan hefir þú fengið þá sannfæringu, að hann sje vegurinn, sannleikurinn og lifið (Jóh. 14, 6.), ef þú ekki trúir því, að enginn þekki Föðurinn, nema Sonurinn og sá, er Sonurinn vill op- inbera hann (Matt. 11, 27)? Pú kallar Jesúm Frelsara. Og svo var hann kallaður, af því að hann átti að frelsa lýð sinn af syndum hans (Malt. 1, 21.). Þú segir, svo framarlega sem þú ert kristinn, að hann sje /riðþœging synda vorra, og þó ekki að eins vorra, heldur og synda alls heimsins (I. Jóh. 2, 2). 1) Sbr. t. d. I. Jóh. 5, 1.—5.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.