Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.05.1919, Qupperneq 13

Bjarmi - 01.05.1919, Qupperneq 13
BJARMI 77 segja eöa hlýöa á sögur frá æskuárunum á Islandi. Betel stendur alveg viö Winnipegvatn- ið, og svalirnar og aðalgluggarnir snúa að vatninu — og aö íslandi. Pað sjest ekki yfir vatnið, og pvi belur minnir pað á að »fyrir handan hafið«, er æsku- drauma landið, »gamla ísland«, sem gamla fólkið sjer ekki framar, en »fyrir handan hafið« er einnig Jerúsalem, fyrirheitna landið, — og þangað liggur leiðin heim. Eitt var það samt, sem mjer var óþægi- legt umhugsunarefni, er jeg kom i Betel, — og það var að hugsa um, að ekkert slíkt heimili væri til á íslandi. Þvílíkt dæmalaust framtaksleysi hjá oss, og fyrirhyggjuleysi hjá þeim sem þó eru slíku hlyntir, að vilja heldur híða áratugum saraan, en byrja í »smáum stýl!« Ef jeg yrði hjer framvegis, færi jeg að reyna að gangast fyrir samtökum til fjár- söfnunar í þvi skyni, og jeg er ekkert hræddur um að fjeð mundi vanta, ef vel væri byrjað. — En ekkert vildi jeg við það eiga, ef ekki væri trygging fyrir að liægt væri að l'á sar.nkristna forstöðif konu, og fyrirtækið vær rekið algjörlega í kristilegum anda. — Mannúð er góð, en liún er ekki nægi- leg lil að hjálpa gömlu fólki til að bera þraulir elljnnar með bros á vanga. Gam- almennahæli á eklci að vera til fordildar nje atvinnufyrirtæki fyrir cinstaklinga, nje heldur fyrst og fremst til hægðar- auka fyrir sveitafjelög eða fátækranefndir, heldur þarf það urn fram alt annað að vera »forgarður að paradís« fyrir gamla fólkið. S. A. Gislason. Kirkiumálastefna Bolsjevika. Grísk-kaþólska kirkjan var ríkiskirkja Rússlands uns keisaranum var steypl frá völdum. Evangeliskir trúarflokkar hafa sætt þar margskonar ójöfnuði og ofsókn- um, og trúarbragðafrelsi var tiltölulega nýtt og litið meira en á pappírnum. — Samt voru Rússar taldir mjög trúræknir »á sína visu«, en saman við trúræknina blönduðust margskonar hindurvitni, prest- arnir voru margir mentunarsnauðir og drykkfeldir, og furðu lítið af lifandi kristindómi innan rikiskirkjunnar, þótt kirkjurækni væri sæmileg. Það var því ekki við því að búast að byltingarflokkur sá, sem nú ræður mestu á Rússlandi, jrrði sanngjarn í kirkjumál- um. Er hjer stefnuskrá lians í trúmálum og athugasemdir á eftir sem sr. Guttorm- ur Guttormsson i Minneota skrifar í febrúarblað Sameiningarinnar. Slefnuskráin hljóðar svo: 1. Kirkja og riki skulu aðskilin. 2. Blátt bann skal lagt við þvi, að nokkursstaðar í lýðveldinu rússneska sje samin, i bæjurn, sveitum eða fylkjum, nolckur lög eða reglugjörðir, er skerði, eða takmarki samviskufrelsi manna á nokkurn liátt, eða veiti nokkrum mönn- um sjérstök hlunnindi eða forrjettindi fyrir þá sök, að þeir sjeu áhangendur vissra trúarflokka. 3. Hverjum borgara skal frjálst að jála hvaða trú, sem hann vill, eða alls enga, ef honum svo sýnist. Sjerhver rjettinda- skerðing í sambandi við játning einhverr- ar trúar, eða engrar trúar, skal afnumin. 4. Engar guðsþjónustur eða trúar- bragðasiði má hafa um hönd i sambandi við nokkra athöfn stjórnarinnar eða opin- berra stofnana. 5. Heimilt skal öllum trúarvenjum og tilbeiðslusiðum, að fara fram óhindruð- um, ef ekki spilla friði og góðri reglu, nje sýna af sjer nokkur tilræði við lýð- veldið eða rjettindi þau, sem borgarar þess njóta. Skulu undirstjórnir hafa alt eftirlit með höndum í þessu efni. 6. Enginn má neita að inna af hendi borgaraskyldur og bera fyrir trúarbragða- skoðanir. Þó mega dómstólar fólksins í einstökum tilfellum veita undanþágu frá þessu lagaákvæði, með þvi móti, að ein þegnskylda komi fyrir aðra. 7. Eiðar skulu afnumdir. í stað þeirra komi hátíðleg heit eða staðhæfiugar. 8. Öll borgaraleg starfsemi skal vera í höndum ríkis, en ekki kirkju; svo sem skrásetning fæðinga, giftinga, o. s. frv. 9. Skóli og kirkja skulu aðskilin. Blátt bann liggur við, að nokkur trúarskoðun sje kend í ríkisskólum, eða öðrum ríkis- stofnunum, nje heldur í nokkrum »prívat«- skólum, þar sem kend er almenn fræði. Þó mega borgarar leggja slund á trú- fræði, og kenna hana »prívallega«. 10. ÖII fjelög, kirkjuleg eðn trúarleg,

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.