Bjarmi - 01.05.1919, Síða 15
BJARMI
79
indum trúarinnar, að hún má ekki eiga
skýli yfir sig, og verður að þiggja bæði
húsnæði og helgiáhöld að láni hjá vers-
legi stjórn.
-- ------------------------^
Raddir almennings.
^=.. ............................
Samtal.
Ert þú að kveðja mamma mín
hvert muntu halda ferð?
Jeg sje að blikna brosin þín;
þig bugar dauðans sverð.
O, gröfin! skal hún gæta þín?
»Hún geymir að eins hold,
til himins svífur sálin min
þó sveipist líkið mold«.
Jeg veit hvert ferðu, mamma mín,
því má jeg gleðjast af;
það blikna aldrei brosin þín,
þú bendir mjer um haf.
Mjer finst þá liyljast hugarsýn
og horfin öll mín skjól,
jeg sje livar bliði bjarminn dvín
af bernsku minnar sól.
»0, hræðstu ei, mitt blíða barn,
þótt brautin verði grýtt,
því ávall logar ljós um hjarn,
það ljós er skærl og hlýtt«.
^Það ljós er Herrans líknarsól
það lýsir þinni önd;
í helgri bæn þitt frelsi fól
jeg föðursins á hönd.«
./. M.
^Jndir lestn á páskadag.
Kristur Guðs son, jeg þakka þjer
þarf mig ei synd að liræða;
því lífið þitt út til lausnar mjer
'jest þú á krossi blæða.
Ranglæti heims og hatrið verst
újer vil jeg með þjer líða;
Rú sem sjerð hvað mjer þjenar best,
þvi vil jeg hugrór biða.
Jeg veil minnar æfi kemur kvöld,
þá kallar mig burtu dauðinn;
þú, sem barst heimsins glæpagjöld,
gefur mjer sælli auðinn.
rr — ^
Hvaðanæfa.
......■—........ — —'j
Heima.
19. apríl voru talin saman atkvæði úr
Helgafells-, Stykkishólms- og Setbergs-
prestaköllum. 1 Stykkishólmi er kosinn
Ásgeir Ásgeirsson í Hvammi með 183
akv. Sig. Ó. Lárusson cand. theol. fjekk
136 atkv. og sira Böðvar á Rafnseyri 5
atkv.
Að Setbergi er kosinn síra Jósef Jóns-
son með 83 atkv. Sira Ólafur Stephensen
fjekk 30 atkv.
Kosningar eru lögmætar á báðum
stöðum.
Síra Sigfús Jónsson á Mælifelli hefir
sótt um lausn frá prestsskap, er orðinn
kaupfjelagssljóri á Sauðárkrók. Síra Por-
Bénediktsson i Landeyjum hefir sömu-
leiðis sótl um lausn frá prestsskap vegna
heilsubilunnar.
Prestlaunamálið er loksins að kom-
ast á dagskrá. Síra Guðmundur prófastur
í Ólafsvík, hefir sýnt fram á í Lögrjettu
með glöggum tölum, hvað fráleit launa-
kjörin eru nú, og heyrst hefir að lijeraðs-
fundur á ísafirði hafi krafist þess, að
launin yrði minsta kosti tvöfölduð. En
nú er eftir að vita hvernig meiri hluti
kjósenda, sem vanrækir alveg kirkju-
ferðir fiesta sunnudaga ársins, lítur á
málið.
Vera kynni að ýmsir úr þeim hóp líli
á málið svipað hónda einum, sem var
lijer um árið að sýna mjer með tölum,
að prestarnir »sem hann þekti«, fengju
hærri borgun en flestir aðrir fyrir störf
sín.
»Peir messa alls ekki oftar en 20 sinu-
um á ári að jafnaði, — söfnuðurnir
kæra sig ekki um fleiri messur«, sagði
hann, »og það er bærileg borgun að fá
65 til 75 kr. fyrir hverja raessu«. —