Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1922, Blaðsíða 8

Bjarmi - 01.09.1922, Blaðsíða 8
160 BJABMI brottvikningu úr fjelaginu. 3. Inngöngu- skilyrðin eru: a) vera í lúth. kirkju, b) játa persónulcga trú eða alvarlega trúar- leit, c) hallast að Valby-söfnuði, guðs- þjónustum lians og öðru trúarlííi, d) vcra fyrst gestur fjelagsskaparins árlangt ncina sjerstaklega standi á. 4. Burtvikning má ekki eiga sjer stað ncma safnaðarráð sam- þykki, enda hafl það áður margoft að- varað viðkomandi. 5. Safnaðarráðið stjórn- ar öllum fjelagsmálum og störfum iyrir Guðs riki. 6. Safnaðarráðið mynda 10 menn fjclagsskaparins og auk þcss er sóknarprcsturinn sjálfkjörinn, þegarhann tekur þátt í safnaðarlíflnu. Er auðsjeð að með slíkum fjelags- skap er verið að safna saman kjarna safnaðarins og fá honum verkefni. — En þau verða því fleiri og marg- brotnari, sem söfnuðurinn er fjöl- mennari. Má þá nefna forgöngu kristilegra funda f söfnuðum til vakningar og fræðslu, sunnudagaskóla, unglinga- starf, matgjaíir til fálækra, sjúkra- vitjun og ýmiskonar líknarstarf. Er þá sjerstökum nefndum falið eflirlit með _hverju starfi, en almennir fje- lagsfundir haldnir einu sinni á mán- uði. öllu safnaðarstarfinu er að sjálf- sögðu hinn mesli styrkur að slikum fjelagsskap, og þeim, sem þangað koma, verður ljósara en áður, livað gott er bræðrum að búa saman, og að samfjelag Guðs barna er ekki að eins fögur eilifðarvon heldur og hnoss hjer á jörðu. — Sadhu Sundar Singh segir, að samfjelag Guðs harna inn- fayrðis og við Guð sje rjettnefndur »hinn fyrsti himinn«. Jeg hefi oft óskað þess, er jeg hefi gengið um i trjágörðunum er fylgja flestum prestssetrum í Danmörku að slíkir unaðsreilir væru koinnirá hverl islenskt prestssetur. En ætti jeg að velja, mundi jeg þó miklu fremur kjósa, að hver íslenskur prestur hefði umhverfis sig slíkan hóp trúaðra á- hugamanna, sem jeg hefl kymst i mörgum erlendum prestaköllum. Væntanlega hefir öllum skilist, að óhjákvæmilega skilyrðið fyrir öllu framangreindu starfi er trúarvakning. I’að er ekki til neins að fá sofandi fólki verkefni, fyrst er að vekja það. Og þá blessast staríið best fyrir 'land og lýð og kemst bjá mörgum mein- um, ef preslar og leikmenn vinna að því i bróðurlegri einingu. það er ekki aðalatriðið við hvað menn vakna, heldur hvernig nývöknuðu fólki er leiðbeint. Sjeu prestarnir færir um það, þá getur enn orðið víða á þessu landi svipað og var á Hólum fyrir 800 áruin á dögum Jóns biskups Ögmundssonar. — Væri ekki rjett að vinna að þvi? — Guð gefi að margir vor á meðal megi lifa þær fagnaðar- stundir, að heilbrigð trúarvakning fari um meðal íslendinga. Bækur. Spiritismens Btœnduœrlc og Sjœle- dybets Gaader, eftir Martensen-Larsen, dómprófast í Hróarskeldu. Frimodts- Forlag 1922 2 bindi, alls 500 bls.; verð um 17 kr. islenskar. Höf. til- einkar bókina »ölluin sannleiksleit- andi spírilistum og öllum, sem eru á báðum áttum gagnvart hinum tor- skýrðu fyrirbrigðum«, enda á hún erindi lil þeirra. F’yrst og fremst ílytur hún mikiun fróðleik um sögu spíritisma og fyrir- brigði í ýmsum löndum. Dregur höf. síst undan að skýra frá því, sem merkast þykir i þeim efnum, og tek- ur meðal annars vænan kafla úr frá- sögum Haraldar prófessors Níelsson- ar i Danmörku í fyrra, um ýmsa »dá- samlega hæíileika« lndriða Indriða-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.